Ljóðskáld, lestrarhestar og tvítyngdir nemendur fá Íslenskuverðlaun unga fólksins

Skóli og frístund Menning og listir

""

70 reykvískir grunnskólanemar tóku í dag við Íslenskuverðlaunum unga fólksins í bókmenntaborginni Reykjavík og hafa aldrei fleiri hampað verðlaununum á Degi íslenskrar tungu.

 

Skúli Helgason formaður skóla- og frístundaráðs og Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi afhentu  Íslenskuverðlaunin sem að þessu sinni voru bókin Ljóðaúrval með ljóðum Jónasar Hallgrímssonar í samantekt Böðvars Guðmundssonar og viðurkenningarskjal. Einnig fengu verðlaunhafar að gjöf bókamerki frá Reykjavík bókmenntaborg UNESCO.

Sjá lista með nöfnum verðlaunahafanna. 

Íslenskuverðlaununum er ætlað að auka áhuga grunnskólanema í Reykjavík á íslenskri tungu og hvetja þá til framfara í tjáningu í töluðu og rituðu máli. Um 800 nemendur eða nemendahópar hafa verið tilnefndir til Íslenskuverðlaunanna frá upphafi en þau voru nú veitt í þrettánda sinn. Allir grunnskólar í borginni geta tilnefnt nemendur eða nemendahópa, einn á hverju skólastigi. Meðal verðlaunahafa í ár voru ungir lestrarhestar, framúrskarandi upplesarar, tvítyngdir nemendur sem náð hafa góðum tökum á íslensku á skömmum tíma, ljóðskáld og sagnahöfundar. Verndari Íslenskuverðlaunanna er frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti Íslands 1980-1996. 

Við athöfnina í Hörpu fluttu nemendur í Sæmundarskóla flytja lagið Viltu vera með? úr Skrekksatriði skólans 2019 og Skólahljómsveit Austurbæjar lék undir stjórn Eiríks Rafns Stefánssonar. Þá var að vanda samsöngur stoltra verðlaunahafa, foreldra, systkina og kennara sem sungu lagið hans Atla Heims við texta Þórarins Eldjárns; Á íslensku má alltaf finna svar.