Litadýrð á endurgerðum torgum í Mjódd

Umhverfi

Drengur situr í túlípanasæti á torgi í Mjódd.

Óhætt er að segja að torgin þrjú í Mjóddinni hafi fengið allsherjar andlitslyftingu eftir vel heppnaða endurgerð sem er nú að mestu lokið. Búið er að endurnýja hellulagnir, setja snjóbræðslu á helstu gönguleiðir og planta gróðri í upphækkuð blómaker. Áhersla er lögð á að auka yndi og ánægju vegfarenda með lit og lýsingu. Þarna er að finna spennandi ljósalistaverk í mörgum litum, litskrúðuga og öðruvísi hjólaboga, túlípanasæti og ljóslínur í hellulögn. Heildarhönnun svæðisins fær að njóta sín á öllum árstíðum og allan sólarhringinn.

Dagmyndir/Reykjavíkurborg Kvöldmyndir/Örn Erlendsson

16 túlípanar og litrík lýsing vekja athygli

Það kennileiti sem vekur hvað mesta athygli samanstendur af 16 túlípönum sem komið hefur verið fyrir milli Þangbakka 8-10 og Mjóddarinnar. Túlípanarnir þjóna ekki einungis fagurfræðilegum tilgangi heldur nýtast þeir einnig sem þægileg snúningssæti og ruslatunnur taka meira að segja á sig hið sveigða form túlípana. Þegar kvölda tekur er svæðið lýst upp á litríkan og lifandi máta sem setur sterkan svip á torgið.

Marglitir rammar með lýsingu bjóða upp á leik

Lögð var áhersla á að skapa aðlaðandi rými með bekkjum, gras- og gróðursvæðum skipt með eyjum úr corten-stáli og hellulögn. Þarna eru litríkir ljósrammar sem hvetja fólk til að staldra við, leika sér og taka myndir. Rammarnir eru um það bil 2-3 metrar í þvermál, auk þess er þeim snúið um miðás þannig að úr verður áhugavert form sem er breytilegt eftir sjónarhorni. Í römmunum eru einnig lampar sem endurkasta liti rammanna út í umhverfið. Rammarnir bjóða því upp á ólíka stemmingu eftir því hvort að það er dagur, ljósaskipti eða nótt.

Götulýsing var jafnframt endurnýjuð með það að leiðarljósi að auka öryggistilfinningu en jafnframt búa til þægilega og aðlaðandi stemmingu. Landmótun sá um landslagshönnun og Liska um lýsingar- og rafmagnshönnun en NNE verkfræðistofa hefur svo haldið utan um eftirlit með verkframkvæmdinni.

Það er því kjörin ástæða til að kíkja í Mjóddina hvort sem er um dag eða kvöld og njóta þessara nýuppgerðu torga sem setja skemmtilegan svip á þetta líflega verslunar- og þjónustusvæði.