Lífsgæðakjarnar fyrir eldri borgara

Gísli Bogason, Erna Stefánsdóttir, Dagur B. Eggertsson, Magnús Björn Brynjólfsson, Jóhann Birgisson og Guðmundur Pálmi Kristinsson.
Gísli Bogason, Erna Stefánsdóttir, Dagur B. Eggertsson, Magnús Björn Brynjólfsson, Jóhann Birgisson og Guðmundur Pálmi Kristinsson.

Með lífsgæðakjarna er átt við húsnæðisuppbyggingu fyrir aldraða sem er með fjölbreytt framboð af þjónustu í nærumhverfinu. Við Leirtjörn vestur í Úlfarsárdal, í Gufunesi og við Ártúnshöfða er gert ráð fyrir allt að 300 íbúðum fyrir eldri borgara. Þegar er ákveðið að gera samninga við Samtök aldraðra og Leigufélag aldraðra.

Fulltrúar þeirra og borgarstjóri hittust í dag við Leirtjörn þar sem skrifað var undir samninga við báða aðila um íbúðir í lífsgæðakjörnum.

Leirtjörn, Gufunes og Ártúnshöfði

Samtök aldraðra fá byggingarrétt fyrir allt að 50 íbúðum við Leirtjörn en áætluð úthlutun íbúða við Leirtjörn verður á árunum 2024-2025.

Leigufélag aldraðra fær vilyrði fyrir 50 íbúðum við Leirtjörn sem verða tilbúnar á árunum 2024-2025. Leigufélagið hefur einnig fengið vilyrði fyrir allt að 70 íbúðum í Gufunesi og allt að 30 íbúðum á Ártúnshöfða sem koma til úthlutunar á árunum 2026 og 2027.

Leigufélag aldraðra skuldbindur sig til að framselja Félagsbústöðum hf. 20% íbúða í Gufunesi og Ártúnshöfða á kostnaðarverði. Félagsbústaðir hf. hafa kauprétt á kostnaðarverði á allt að 5% íbúða sem byggðar verða á byggingarreitum við Leirtjörn, í Gufunesi og við Ártúnshöfða.

Áhersla á fjölbreytt búsetuform

Borgarráð hefur samþykkt að auglýsa eftir samstarfsaðilum og hugmyndum um þróun á völdum reitum í Reykjavík fyrir eldri borgara.

Landsamband eldri borgara hefur talað fyrir nýrri hugsun í nálgun við húsnæðiskosti eldra fólks, svo kallaða lífsgæðakjarna, sem eru af danskri fyrirmynd. Í slíkum kjörnum er lögð áhersla á fjölbreytt búsetuform. Eignaríbúðir, búseturéttaríbúðir, leiguíbúðir og jafnvel hjúkrunaríbúðir eða hjúkrunarheimili í bland við annað íbúðahúsnæði fyrir aðra aldurshópa. Með þessu væri hægt að tryggja áhugavert og aðlaðandi umhverfi, samveru og öryggi um leið og ólíkum þörfum er mætt. Dæmi um slíka byggð er uppbygging Sjómannadagsráðs við Sléttuveg og Grundar í Mörkinni ásamt kjarna Eirar í Grafarvogi.