Leikskólaplássum fjölgar um 75 í Miðborg

Skóli og frístund

Forsetinn Íslands í heimsókn í Brekkuborg

Rekstarleyfi leikskólans Miðborgar hefur verið fært upp 161 barn en sem stendur eru þar 86 börn með pláss. Breytingin er gerð að tillögu sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs sem var samþykkt í borgarráði dag.

Unnið að standsetningu nýrrar Ævintýraborgar

Plássum í leikskólanum hefur því fjölgað um 75 vegna tilkomu Ævintýraborgar við Vörðuskóla sem hefur fengið nafnið Vörðuborg. Vörðuborg er hluti af leikskólanum Miðborg en það eru einnig Barónsborg og Lindarborg. Unnið er hörðum höndum að því að plássin í Vörðuborg verði tilbúin sem fyrst í haust og verður fyrstu 40 plássunum úthlutað um mánaðarmótin júlí, ágúst. Einn biðlisti er fyrir Miðborg og börn fá pláss í því húsi sem passar best út frá barnafjölda og aldri þeirra barna sem fá úthlutað plássi.

Tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs