Konur loka miðborginni á Kvennafrídegi
Miklar götulokanir verða í miðborginni á Kvennafrídegi miðvikudaginn 24. október nk. Lokanir verða á Kalkofnsvegi og víðar vegna baráttufundar á Arnarhóli í tilefni af Kvennafríi 2018.
Sviði verður komið fyrir Kalkofnsvegi fyrir framan Arnarhól og hefst uppsetning sviðsins kl. 09:00 að morgni miðvikudags og þá akreinum í báðar áttir lokað.
Kvennahreyfingin og stéttarfélögin hvetja konur til að leggja niður störf kl. 14:55 miðvikudaginn 24. október. Dagskrá hefst við Arnarhól kl. 15:30. Gert er ráð fyrir að viðburðurinn vari í um eina klukkustund. Búist er við miklum mannfjölda í miðborginni meðan á dagskrá stendur.
Miklar takmarkanir verða á umferð í miðborginni kl. 15:00 og vara þar til formlegri dagskrá lýkur. Ökumenn ættu því að forðast að keyra um miðborgina á þessum tíma. Kalkofnsvegur verður lokaður áfram þar til sviðið hefur verið tekið niður á ný en þó ekki lengur en til kl. 21:00.
Bílastæðum á móts við Skúlagötu 4, sem hýsir atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið, verður lokað þennan dag og þau nýtt fyrir hreyfihamlaða á meðan á dagskránni stendur. Rútum verður beint á rútustæði við Hörpu.