Jólin kvödd með þrettándabrennum í borginni

Mannlíf Menning og listir

Frá þrettándabrennu við Ægisíðu Arctic Images - Ragnar Th.
Dökk mynd af fólki standandi við þrettándabrennu við Ægisíðu, hús götunnar í bakgrunni og flugeldar springa á himni.

Tvær þrettándabrennur verða haldnar í Reykjavík á morgun, þrettándann, 6. janúar 2023, við Ægisíðu og við frístundamiðstöðina Gufunesbæ í Grafarvogi.

Austurmiðstöð stendur fyrir þrettándabrennu við Gufunesbæ og hefst dagskráin kl.17 með notalegri kakó- og vöfflustund í Hlöðunni. Skólahljómsveit Grafarvogs leikur létt lög kl. 17.20 og leiðir síðan göngu frá Hlöðunni að brennu kl. 17.55. Kveikt verður í brennunni kl.18 og munu Espólín, Dóra og Döðlurnar og Friðrik Dór skemmta gestum. Þrettándagleði lýkur svo með flugeldasýningu kl.19. 

Gestir minntir á að skilja skotelda eftir heima

Á þrettándahátíð Vesturbæjar verður dagskráin eftirfarandi. Safnast verður saman við Melaskóla kl.18, þar sem Sveinn Bjarki leiðir fjöldasöng en því næst verður gengið með kyndla að brennunni á Ægisíðu í fylgd lögreglu. Borinn verður eldur að kestinum um kl. 18.30 og boðið verður upp á flugeldasýningu um kl.18.45 í samstarfi við KR-flugelda. Vöfflubíllinn mætir á svæðið  og mun allur ágóði af sölunni renna í Örninn sem er minningar- og styrktarsjóður. Kvæðamannafélagið Iðunn tekur nokkur lög og mögulega kíkja jólasveinar við áður en þeir leggja af stað til fjalla. 

Foreldrafélög Vesturbæjar-, Granda-, Haga- og Melaskóla, ásamt Vesturmiðstöð standa að þrettándahátíðinni. Aðstandendur hátíðarinnar biðja, að gefnu tilefni, öll að skilja skotelda eftir heima því mikil hætta getur skapast ef þeim er skotið upp þar sem mörg eru saman komin. Þá er minnt á að óheimilt er að taka við jólatrjám á brennuna. 

Góða skemmtun!