Jólakötturinn mætir á Lækjartorg

Fjölmenni við Jólaköttinn á Austurvelli

Laugardaginn 19. nóvember klukkan 16:00 verður kveikt á ljósunum á jólakettinum á Lækjartorgi. Dagur B. Eggertsson mun bjóða köttinn velkominn á torgið. Kór mun syngja nokkur jólalög og hjónin Grýla og Leppalúði verða á staðnum. 

Kötturinn er um fimm metrar á hæð, sex metrar á breidd og er lýstur upp með 6500 led ljósum. Jólakötturinn var settur upp í fyrsta sinn árið 2018 og hefur ávallt vakið mikla athygli gesta og gangandi á torginu. Hönnun jóla­kattarins er sam­starf Reykja­víkur­borgar, MK-illumination í Austur­ríki og fyrir­tækisins Garð­list. Hann mun standa á Lækjar­torgi fram yfir ára­mót.

Jólakötturinn er ein af best þekktu íslensku jólavættunum. Hann er gríðarstór, eins og segir í löngu kvæði Jóhannesar úr Kötlum um þessa óvætt sem er sögð leggja sér þá til munns sem ekki fá nýja flík fyrir jólin. Það kallast að fara í jólaköttinn og eins gott fyrir bæði börn og fullorðna að forðast þau grimmu örlög, t.d. með því að vinna sér inn fyrir þótt ekki væri nema einu sokkapari. Jólakötturinn minnir á svipaðar dýravættir á öðrum Norðurlöndum og á ættir að rekja til þeirra, svo sem jólahafursins sem margir Íslendingar þekkja líka.

Þið kannist við jólaköttinn,

– sá köttur var gríðarstór.

Fólk vissi ekki hvaðan hann kom

eða hvert hann fór.

Hann glennti upp glyrnurnar sínar,

glóandi báðar tvær.

– Það var ekki heiglum hent

að horfa í þær.

Í dag er því oft haldið fram að jólakötturinn sé heimilisdýr Grýlu og Leppalúða en ómögulegt er að segja hvort hann eigi í raun heima hjá þeim eða hvaðan hann eiginlega kemur. Hitt er víst að við getum öll hjálpast að við að tryggja það að enginn þurfi að fara í gin kisu, ef hún er þá í raun og veru til. Hvað sem um það má segja lifir hún allavega góðu lífi í þjóðsögum og kvæðum sem munu vonandi halda áfram að skemmta okkur – og hræða – um ókomna framtíð.