Framkvæmdir hefjast við íþróttamannvirki í Úlfarsárdal í ágúst.
Borgarráð ákvað á fundi sínum í morgun að heimila umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja í Úlfarsárdal. Kostnaðaráætlun við mannvirklin hljóðar upp á rúma 4,6 milljarða króna. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í ágúst 2019 og að þeim verði að lokið í maí 2022.
Framkvæmdirnar eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar við íþróttafélagið Fram sem samþykktur var í borgarráði í júlí 2017.
Íþróttamiðstöðin mun samanstanda af fjölnota íþróttahúsi, áhorfendastúku fyrir aðalleikvang í knattspyrnu, minni íþróttasölum, félags- og þjónustuaðstöðu fyrir starfsfólk, þjálfara og félagsmenn, búningsrýmum ásamt samkomusal og fundaraðstöðu.
Íþróttamannvirkin munu þjóna félagsmönnum íþróttafélagsins Fram og íbúum Grafarholts og Úlfarsárdals og verða afhent fullfrágengin. Þá verða jafnframt boðnar út framkvæmdir við undirbyggingu og lýsingu fyrir nýjan keppnisvöll Fram í Úlfarsárdal.
Íþróttasalur ásamt fylgirýmum verður nýttur af skólum í hverfinu.
Íþróttamiðstöðin er austasti hluti bygginga við Úlfarsbraut 122-126 í Úlfarsárdal. Í vestari hluta bygginganna eru leik- og grunnskóli ásamt frístundamiðstöð, menningarmiðstöð og sundlaug sem nú eru ýmist fullbyggð eða í uppbyggingu. Nýlega samþykkti borgarráð að bæta við vatnsrennibraut við nýja útisundlaug sem nú er verið að byggja til að gera laugina fjölskylduvænni.
Heildarstærð íþróttamiðstöðvarinnar verður 7.361 m2 . Við hönnun allra mannvirkja er miðað við kröfur vegna BREEAM umhverfisvottunar sem gefur kost á svokallaðri grænni fjármögnun framkvæmdanna með grænum skuldabréfum.
Öll mannvirkin eru í miðjum Úlfarsárdal og liggja vel við nærliggjandi byggð með góðum samgöngutengingum fyrir gangandi, hjólandi og akandi.