Íþróttafólk Reykjavíkur 2016

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Tilkynnt var um val á Íþróttafólki Reykjavíkur í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag. Allt frá árinu 1979 hefur stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur valið Íþróttamann Reykjavíkur og var þetta því í 38.sinn sem hátíðin fór fram. Í ár voru í fjórða sinn kjörin Íþróttakarl og Íþróttakona Reykjavíkur auk þess sem að Íþróttalið ársins í Reykjavík var valið.

Íþróttakarl Reykjavíkur 2016 er kraftlyftingamaðurinn Júlían Jóhann Karl Jóhannsson úr Glímufélaginu Ármanni. Júlían varð heimsmeistari í réttstöðulyftu í flokki fullorðinna og heims- og Evrópumeistari ungmenna á árinu ásamt því að setja ótal Íslands- og Norðurlandamet. Hann er stigahæsti íslenski kraftlyftingamaðurinn frá upphafi.

Íþróttakona Reykjavíkur 2016 er kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur. Ólafía Þórunn var á dögunum fyrst íslenskra kylfinga til að vinna sig inn á PGA mótaröðina í golfi. Hún er Íslandsmeistari kvenna í golfi og setti mótsmet á Íslandsmótinu með því að leika á -11 samtals. Íþróttalið Reykjavíkur 2016 er lið KR í körfuknattleik karla sem varð bæði Íslands- og bikarmeistari á árinu.

Tíu einstaklingar og fimmtán lið frá tíu félögum voru verðlaunuð fyrir frábæran árangur á árinu 2016 í dag. Íþróttafólkið og íþróttafélögin sem að liðunum standa fengu bæði áletraða verðlaunagripi og peningastyrk í verðlaun en heildarupphæð styrkjanna var 4.500.000 krónur. Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur veittu styrkina.
Liðin sem fengu verðlaun fyrir árangurinn á árinu 2016:
•           Ármann – Bikarmeistarar í liðakeppni í áhaldafimleikum karla
•           Ármann – Bikarmeistarar í liðakeppni í áhaldafimleikum kvenna
•           GR – Íslandsmeistarar í sveitakeppni kvenna í golfi
•           ÍR – Bikarmeistarar í keilu kvenna
•           ÍR – Íslands- og bikarmeistarar í keilu karla
•           Júdófélag Reykjavíkur – Bikarmeistarar í sveitakeppni karla
•           Júdófélag Reykjavíkur – Bikarmeistarar í sveitakeppni kvenna
•           Keilufélag Reykjavíkur – Íslandsmeistarar í keilu kvenna
•           KR – Íslands- og bikarmeistarar í körfuknattleik karla
•           KR – Íslandsmeistarar í liðakeppni kvenna í borðtennis
•           TBR – Íslandsmeistarar í liðakeppni beggja kynja í badminton
•           Valur – Bikarmeistarar í handknattleik karla
•           Valur – Bikarmeistarar í knattspyrnu karla
•           Víkingur – Íslandsmeistarar í liðakeppni karla í borðtennis
•           Þórshamar – Íslandsmeistarar í kata karla
Einstaklingarnir sem fengu verðlaun fyrir árangurinn á árinu 2016:
•           Aníta Hinriksdóttir, ÍR
•           Anton Sveinn McKee, Ægir
•           Árni Björn Pálsson, Fákur
•           Ásdís Hjálmsdóttir, Ármann
•           Brynjar Þór Björnsson, KR
•           Eygló Ósk Gústafsdóttir, Ægir
•           Helgi Sveinsson, Ármann
•           Irina Sazonova, Ármann
•           Júlían Jóhann Karl Jóhannsson, Ármann
•           Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR

Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson og formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur, Ingvar Sverrisson, afhentu íþróttafólkinu og forsvarsmönnum íþróttafélaganna verðlaunin í dag.