No translated content text
Innköllun á Tostitos Chunky Salsa, Medium, sósu vegna aðskotahlutar (glerbrot)
Heilbrigðiseftirlit
Aðföng hafa, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað Tostitos Chunky Salsa, Medium, sósu vegna þess að glerbrot hefur fundist í einni krukku.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Tostitos.
Vöruheiti: Chunky Salsa, Medium.
Strikanúmer: 028400055987.
Best fyrir: 10. apríl 2019.
Lotunúmer: 2331100TB11:46.
Nettómagn: 439,4 g.
Framleitt fyrir: Frito-Lay, Inc. í Bandaríkjunum.
Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7, 104 Reykjavík.
Dreifing: Verslanir Bónus, Hagkaupa og Super1 um land allt.
Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600, gaedastjori@adfong.is.