Innköllun á sykurlausum Opal með saltlakkrísbragði
![Svartur Opal](/sites/default/files/styles/landscape_small/public/2022-10/Svartur-opal-perspectice.png?h=889db52b&itok=YpcRzT6a)
Nói Síríus, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum sykurlausan Opal með saltlakkrísbragði.
Vegna mistaka hefur Opal með mentóllakkrísbragði sem inniheldur sykur verið pakkað í umbúðir með sykurlausum Opal með saltlakkrísbragði.
Neysla á vörunni getur skapað hættu fyrir þá neytendur sem þurfa að takmarka sykurinntöku sína.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Opal
Vöruheiti: Sykurlaus Opal með saltlakkrísbragði
Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 12.01.2024
Lotunúmer: L1932
Nettómagn: 100 g
Strikamerki: 5690576303244
Framleiðandi: Nói Síríus, Hesthálsi 2-4, 110 Reykjavík
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:
Nói Síríus, Hesthálsi 2-4, 110 Reykjavík.
Dreifing:
Verslanir um land allt.
Leiðbeiningar til neytenda:
Neytendur sem keypt hafa sykurlausan Opal með saltlakkrísbragði með framangreindu lotunúmeri og best fyrir dagsetningu er bent á að neyta vörunnar ekki og farga en einnig má skila henni til Nóa Síríus.
Nánari upplýsingar um innköllun:
Nánari upplýsingar veitir Nói Síríus í síma 575 1800 eða noi[hja]noi.is.