Innköllun á hummus frá Í einum grænum

Heilbrigðiseftirlit Innkallanir matvæla

""

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur: Innköllun á hummus frá Í einum grænum

Efni: Innköllun á hummus frá Í einum grænum vegna þess að varan getur innihaldið aðskotahlut (málmþráð).

Í einum grænum ehf. hefur, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, ákveðið í varúðarsjónarmiði og með tilliti til neytendaverndar að innkalla Hummus í dósum. Ástæðan er sú að aðskotahlutur þ.e. málmþráður fannst í einni dós.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vöruheiti:  Hummus

Vörunúmer:  6700 / 6710

Strikanúmer: 5690821067006  / 5690821067105

Nettómagn: 250 g

Best fyrir: 04.03.2018

Framleiðandi: Í einum grænum ehf.

Dreifing: Verslanir um land allt

Þeir einstaklingar sem hafa keypt Hummus með framangreindum merkingum, geta skilað þeim til höfuðstöðva fyrirtækisins að Brúarvogi 2, 104 Reykjavík eða í næstu verslun og fengið nýja vöru í staðinn. Allar nánari upplýsingar fást hjá Í einum grænum alla virka daga frá 9 - 16 í síma 565-3940.