Innköllun á diskasetti fyrir börn

Heilbrigðiseftirlit Innkallanir matvæla

""

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun á diskasetti fyrir börn. 

Efni:  Innköllun á diskasetti fyrir börn þar sem formaldehýð fer yfir mörk.

Þorsteinn Bergmann ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað af markaði diskasett fyrir börn þar sem flæði formaldehýðs úr vörunni í matvæli fer yfir leyfilegt hámark.

Í settinu eru: Skál, diskur, glas, skeið og gaffall úr bambustrefjum.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vöruheiti: 5er Set Kindergeschirr aus Bambusfaser – Kids Dish Set Bamboo Fiber.

Framleiðsluland: Kína.

Dreifing: Verslun Þorsteins Bergmanns, Hraunbæ 102, 110 Reykjavík.

Tilkynning um málið barst í gegnum hraðviðvörunarkerfi Evrópusambandsins um matvæli og fóður (RASFF). Í reglubundnu markaðseftirliti í Þýskalandi var athugað hversu mikið formaldehýð fór úr vörunni í matvæli og reyndist magnið vera 171 / 177 mg / kg (ppm). Samkvæmt löggjöf um efni og hluti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli má flæði formaldehýðs úr efnum og hlutum sem ætlað er að snerta matvæli ekki fara yfir 15 mg / kg (ppm).

Neytendur sem eiga vöruna eru beðnir um að farga henni. Nánari upplýsingar veitir verslun Þorsteins Bergmanns í síma 567 2867.