Innkalla sveitapaté með bragði af svörtum trufflum

Heilbrigðiseftirlit

Sveitapaté með bragði af svörtum trufflum hefur verið innkallað.
krukka á borði.

Hyalin ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Sveitapaté með bragði af svörtum trufflum.

Ástæða innköllunar

Ástæða innköllunar er sú að varan inniheldur ofnæmis- og óþolsvaldana hveiti og heslihnetur án þess að þeir komi fram í lista yfir innihaldsefni á leyfilegu tungumáli. Varan ber merkingar á bæði frönsku og ensku, en ofnæmis- og óþolsvaldarnir koma ekki fram á ensku merkingunum.

Hver er hættan?

Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur sem er hættulegur fyrir einstaklinga sem eru með ofnæmi fyrir hveiti og/eða heslihnetum. 

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við

Vörumerki: Godard - Chambon & Marrel

Vöruheiti: Terrine campagnarde au jus de truffe noire aromatisée

Geymsluþol: Best fyrir dags. 24/05/2027

Strikamerki: 3461951001503

Nettómagn: 180 g

Framleiðandi: SAS Godard-Chambon & Marrel, BP40072, Route de Salviac, 46300 GOURDON

Framleiðsluland: Frakkland

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru

Hyalin ehf., Skólavörðustíg 4a, 101 Reykjavík.

Dreifing

HYALIN, Skólavörðustíg 4a, 101 Reykjavík.

Leiðbeiningar til neytenda

Neytendur sem eiga umrædda voru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í verslun Hyalin við Skólavörðustíg 4a og fá endurgreitt. Varan er skaðlaus þeim sem eru ekki með óþol eða ofnæmi fyrir hveiti eða heslihnetum.

Nánari upplýsingar um innköllun

Nánari upplýsingar má nálgast frá Hyalin ehf. í síma 519-7171 / 860-3174 eða með tölvupósti á contact@hyalin-reykjavik.com