Innkalla Carbonara kjúklingapasta

Heilbrigðiseftirlit Innkallanir matvæla

umbúðir á pasta sem var innkallað

Álfasaga ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Carbonara kjúklingapasta.

Ástæða innköllunar:

Röng innihaldslýsing og ómerktir ofnæmisvaldar (egg og sellerí). 

Hver er hættan?

Þeir sem eru með ofnæmi fyrir selleríi og/eða eggjum, geta fengið ofnæmisviðbrögð. 

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Núll Ves

Vöruheiti: Carbonara kjúklingapasta

Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 17.09.2023

Strikamerki: 5694311276961

Nettómagn: 430 g

Framleiðandi: Álfasaga ehf.

Framleiðsluland: Ísland

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:

Álfasaga, Bæjarflöt 2, 112 Reykjavík 

Dreifing:

Krambúðin, Krónan, Nettó, 1011/extra, Hagkaup, Orkan (Allar verslanir) 

Leiðbeiningar til neytenda:

Öll innihaldslýsingin á vörunni er röng og því er varasamt að neyta vörunnar ef einhver ofnæmi eða óþol eru til staðar. Ómerktir ofnæmis- og óþolsvaldar eru egg og sellerí. Vörunni skal skilað í þá verslun þar sem hún var keypt eða fargað.

 Rétt innihaldslýsing er eftirfarandi:

Sósa (rjómi (MJÓLK), ýruefni (E472b, E475, E435, E471, E433), bindiefni (E410, E407), salt, litarefni (E160a)), rjómaostur (MJÓLK, ÁFIR, RJÓMI, salt, bindiefni (gúargúmmí), rotvarnarefni

(kalsíumsorbat), mjólkursýrugerlar), parmesan ostur (MJÓLK, salt, rotvarnarefni (E1105), hleypir), beikon (íslenskt grísakjöt, vatn, salt, bindiefni (E451, E450), rotvarnarefni (E250), þráavarnarefni

(E316)), vatn, grænmetiskraftur (salt, pálmaolía, maltodextrín, grænmetisblanda (gulrætur, laukur, SELLERÍ, blaðlaukur, graslaukur), hvítlaukur, chilimauk (rauður chili, salt, sykur, sýrustillir (E260, E330), rotvarnarefni (E211)), balsamik edik (vínedik, vínberja extrakt, litarefni (E150d)), svartur pipar, sykur), penne pasta 23% (vatn, HVEITI), kjúklingur 14% (kjúklingur, vatn, tapíókasterkja, salt, maltodextrín), EGG.

Ofnæmisvaldar eru FEITLETRAÐIR.

Framleitt á svæði þar sem unnið er með hnetur. 

Frekari upplýsingar um innköllunina eru veittar gegnum tölvupóst: tb(at)alfasaga.is eða símanúmer: 8200019