Endurskoðaðar tillögur að uppbyggingu á Sjómannaskólareit samþykktar í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkurborgar að loknu kynningarferli.
Vegna athugasemda íbúa og annarra hagsmunaaðila hefur verið ákveðið að gera eftirfarandi breytingar:
- Létta á byggingamagni með því að taka út íbúðir fyrir námsmenn og minnka byggingarreit hagkvæms húsnæðis við stakkstæði.
- Stækka opin græn svæði frá auglýstri tillögu og festa þau til frambúðar sem opin svæði til leikja og útivistar í aðalskipulagi.
- Setja hverfisvernd á Stakkstæðið og Vatnshólinn, jafnframt því að tryggja ásýnd að byggingu Sjómannnaskólans.
- Hjóla- og sorpskýli framan og til hliðar við Sjómannaskóla færð eða tekin út.
- Ofanvatnslausnir og lagnakvaðir settar inn.
- Ný lóðamörk, bílastæði og göngustígar aðlöguð breytingum.
- Settar inn bundnar byggingarlínur og byggingarreitur minnkaður.
- Samhliða eru teikningar uppfærðar, texti, töflur, skuggavarp og þrívíddarmyndir.
Þessar tillögur eiga að tryggja fjölbreytt framboð íbúðarhúsnæðis í samræmi við megin markmið húsnæðisstefnu aðalskipulagsins. Einnig stuðla þær að bættri nýtingu svæða innan borgarinnar í samræmi við markmið aðalskipulagsins um uppbyggingu þéttrar og blandaðrar byggðar, sjálfbæra borgarþróun og bættan borgarbrag.
Í heild fækkar íbúðum um tæplega fimmtung og stærð opinna svæða sem skilgreind eru í aðalskipulagi tvöfaldast.
Tillögurnar verða teknar til staðfestingar í borgarráði í næstu viku.