Íbúar í Reykjavík völdu 112 verkefni til framkvæmda á næsta ári í kosningunum Hverfið mitt, sem lauk aðfararnótt fimmtudags. Mun fleiri tóku þátt nú en áður og er um 30% auking frá því síðast. Heildarfjöldi kjósenda nú var 9.292 en í fyrra auðkenndu sig 7.103 íbúar.
Kjörstjórn fór í gær yfir niðurstöðu kosninga um úthlutun fjármagns til smærri nýframkvæmda- og viðhaldsverkefna í hverfum Reykjavíkurborgar. Á kjörskrá voru 99.034 íbúar en af þeim kusu 9.292. Kosningaþátttakan var því 9.4% og hækkar úr 7.3% árið 2015.
Hér í fréttinni eru teknar saman helstu niðurstöður, en þær má skoða nánar í ítarlegri samantekt verkefnisstjóra: Hverfið mitt 2016 - samráðsverkefni um úthlutun fjármagns: Niðurstöður rafrænna kosninga sem fram fóru dagana 3. - 17 nóvember 2016
Konur virkari kjósendur og öflugastar á Kjalarnesi
Í samantekt kjörstjórnar kemur fram að fleiri konur tóku í heildina þátt en karlar eða 58 % á móti 42% og er mynstrið svipað í öllum hverfum. Konur eru alls staðar fleiri í hópi þátttakenda en karlar annað árið í röð. Alls voru 49.699 konur á þjóðskrá og tóku 5.430 þeirra þátt eða 10.9%. Karlar voru 49.335 á kjörskrá og tóku 3.907 þeirra þátt, eða 7.9%.
Hlutfallslega tóku flestar konur þátt á Kjalarnesi, eða 15,4%. Næst hæst var hlutfall kvenna í Grafarholti og Úlfarsárdal eða 13,5%. Lægsta hlutfall kvenna var í Breiðholti en þar tóku 8,1% þeirra þátt. Hlutfallslega tóku flestir karlar þátt í Grafarholti og Úlfarsárdal, eða 10,6%. Næst hæsta hlutfall karla var í Vesturbæ 9,5%. Lægsta hlutfall karla var í Breiðholti 5,5%.
Mest þátttaka í Grafarholti og Úlfarsárdal
Þátttaka í kosningunum var mest í Grafarholti og Úlfarsárdal eða 12,1%. Í Hlíðum tóku 11,1% þátt og Vesturbær Laugardalur og Grafarvogur voru öll með yfir 10% þátttöku. Minnst var þátttakan í Breiðholti þar sem 6.8% íbúa tóku þátt, en hún jókst þó frá fyrra ári. Meiri þátttaka var nú í öllum hverfum en síðast.
Hlutfallsleg kosningaþátttaka:
1. Grafarholt og Úlfarsárdalur - 12,1%
2. Hlíðar - 11,1%
3. Laugardalur - 10,7%
4. Grafarvogur - 10,4%
5. Vesturbær - 10,0%
6. Árbær 9,9%
7. Kjalarnes - 9,5%
8. Háaleiti - 8,7%
9. Miðborg - 7,5%
10. Breiðholt - 6,8%
Verkefni valin til framkvæmda
Íbúar kusu um úthlutun fjármagns til smærri nýframkvæmda og viðhaldsverkefna. Til ráðstöfunar voru 450 milljónir króna, sem er 50% hækkun frá fyrra ári. Fjármunum er skipt milli hverfa eftir reiknireglu sem tekur mið af fjölda íbúa í hverju hverfi (borgarhluta). Hér fyrir neðan er upptalning á verkefnum eftir hverfum og nánar má sjá skiptingu í skýrslu verkefnisstjórnar. Verkefnin koma til framkvæmda á næsta ári.
Árbær – Valin verkefni
- Endurnýja gangstéttar við Rofabæ
- Snjóbræðsla í stíg hjá Árbæjarlaug
- Drykkjarfontur á krossgötur í Elliðaárdal
- Fleiri bekki í hverfið
- Lagfæra svæðið á milli kirkju og skóla
- Gönguleið við Fylkissel
- Upplýsingaskilti um gömlu þjóðleiðina
- Betri lýsing á göngustíg meðfram Höfðabakka frá Bæjarhálsi að Elliðaárdal
- Betri gönguleið frá Viðarási að Reykási
- Leiktæki fyrir yngri börn í Norðlingaholti
- Innskotsstæði við Björnslund
- Betri göngustíg frá Búðavaði að malarstíg
- Barnvænar ruslatunnur
Breiðholt – Valin verkefni
- Fleiri ruslastampa í hverfið
- Hreinsa tjörnina í Seljahverfi
- Fjölskyldusvæði í efra Breiðholti
- Fegra Markúsartorg við Gerðuberg
- Lagfæra gangstéttar við Vesturberg
- Áningarstaður í Seljahverfi
- Dvalarsvæði fyrir unga fólkið
- Torg á horni Seljabrautar og Engjasels
- Lagfæra krappa beygju í Elliðaárdal
- Þrautarbraut og klifurtæki á opið svæði í bökkunum
- Gróðursetja meðfram Stekkjarbakka gengt Mjódd
- Fegra opið svæði við Dverga- og Blöndubakka
- Stígur á milli Dverga- og Arnarbakka
- Fleiri hjólastandar í hverfið
- Merkja götur við göngu- og hjólastíga í bökkunum
- Gönguleið í beygjunni við Arnarbakka
- Bæta leiksvæðið við Unufell
Grafarholt og Úlfarsárdalur - Valin verkefni
- Ruslastampa við Reynisvatn
- Fleiri bekki og ruslafötur við stígana í dalnum
- Frisbígolf í Leirárdal
- Gróðursetja víða í Grafarholtinu
- Bekkir á Kristnibraut og Gvendargeisla í átt að Reynisvatni
- Rækta upp svæðið í kringum hringtorg við Biskupsgötu
- Barnvænar ruslatunnur
Grafarvogur – Valin verkefni
- Ný vatnsrennibraut í sundlaug Grafarvogs
- Fjölga ruslastömpum í hverfinu
- Leiktæki fyrir yngri börn við Gufunesbæ
- Gróðursetja á svæðið við Spöng
- Fleiri bekki við göngustíga
- Fleiri ungbarnarólur í hverfið
- Bekkur við útsýnisspjald við Melaveg
- Skógrækt við Gufunesbæ
- Tengja göngustíga við Rimaskóla
- Gróðursetning við gatnamót Hallsvegar og Strandvegar
- Útiæfingatæki
- Gera göngustíga úr botnlöngum í Vættaborgum
- Pétanque völlur við Gufunesbæ
- Bekkur í Fjölnislitum
Háaleiti og Bústaðir – Valin verkefni
- Fjölga ruslastömpum í hverfinu
- Laga þrep og stíg við Bústaðaveg og Austurgerði
- Mála listaverk á Réttarholtsskóla
- Söguskilti um hitaveitustokkinn
- Dvalarsvæði í Grundargerðisgarði
- Fleiri bekki í Háaleitishverfið
- Ungbarnarólur með foreldrasæti
- Endurgera stíg milli Kúrlands og Bústaðavegar
- Gróðursetja á valin svæði í Fossvogsda
- Gera dvalarsvæði á opnu svæði við Hvassaleiti 1-9
- Fegra og bæta leiksvæði í Úlfaskógi
- Gangbrautarljós yfir Háaleitisbraut við Lágmúla
Hlíðar – Valin verkefni
- Bæta öryggi vegfarenda við undirgöngin við Hlíðarenda
- Bekkir og ruslafötur í Öskjuhlíð
- Fleiri bekki við gönguleiðir í hverfinu
- Hringtorg á Rauðarárstíg við Flókagötu
- Lagfæra net og setja lægri körfur á Klambratúnsvellinum
- Lagfæra göngustíg um Veðurstofuhæð
- Upphækkuð gönguleið í Hamrahlíð við Stigahlíð
- Gangbrautarljós yfir Lönguhlíð við Bólstaðarhlíð
- Pétanque völlur á Klambratún
- Fegra svæðið umhverfis Eskihlíð 2-4
Kjalarnes – Valin verkefni
- Borð og bekki fyrir utan Fólkvang
- Hrein fjara
- Fegra innkomuna í hverfið
- Matjurtagarðar við Fólkvang
- Snúningstæki og fleiri tæki á leiksvæðið við Esjugrund
- Fleiri hjólastandar í hverfið
- Reykjavíkurskilti
- Listaverk - Reykjavíkuraugun
- Listaverk – Laupurinn
Laugardalur – Valin verkefni
- Útigrill í Laugardalinn
- Heit vaðlaug í Laugardalinn
- Endurnýja gangstétt milli Leiru- og Rauðalækjar
- Körfuboltakarfa við Ljósheimaróló
- Ungbarnarólur á Ljósheimaróló
- Gróðursetja við Laugarnesveg
- Endurbæta leikvöll milli Bugðu- og Rauðalækjar
- Hringtorg, Kirkjusandur- Laugarnesvegur
- Gróðursetja við hljóðmön
- Gróðursetja tré á Sæbraut
- Útiaðstaða og bókaskápur við Sólheimasafn
- Fallegri lokun Rauðalækjar
- Hærri upphífingarstangir í Laugardalinn
- Dvalarsvæði við Rauðalæk
- Hraðavaraskilti á Gullteig
Miðborg – Valin verkefni
- Fleiri ruslastampa í Miðborgina
- Fleiri bekki í Miðborgina
- Heit vaðlaug í Hljómskálagarðinn
- Bæta útigrillin í Hljómskálagarðinum og setja þak yfir þau
Vesturbær – Valin verkefni
- Leggja göngu- og hjólastíg aftan við Olís Ánanaust
- Bæta og fegra skúrana við Ægisíðu
- Betri lýsingu á stíg milli Hofsvallagötu og Kaplaskjólsvegar
- Ný gangstétt og hjólavísar á Birkimel
- Ljóð sem birtast í rigningu
- Betri sparkvelli á Ægisíðu og Sörlaskjóli
- Sleðabrekka á Lynghagaróló
- Gangbrautarljós yfir Ánanaust
- Ungbarnarólur með foreldrasæti
- Drykkjarfontur á Eiðsgranda
- Lengja gangstétt milli Ála- og Flyðrugranda