Íbúar kusu ærslabelg og mýkri gönguleiðir

""

Reykvíkingar tóku vel við sér þegar leið að lokum kosninga um framkvæmdir í hverfum borgarinnar.  Þegar kosningum lauk á miðnætti í gær höfðu 12,5% íbúa 15 ára og eldri greitt atkvæði.  Hverfið mitt, eins og íbúakosningarnar kallast, hafa notið vaxandi fylgi ár frá ári. Alls kusu 13.608 íbúar en á kjörskrá í ár voru 108.422 Reykvíkingar.

Verkefni sem kosin voru til framkvæmda í borginni allri eru 91 talsins og bætast þau við 696 verkefni sem til þessa hafa orðið að veruleika fyrir tilstilli íbúalýðræðisverkefnis Hverfið mitt, sem áður hét Betri hverfi. Verkefnin sem voru kosin núna koma til framkvæmda á næsta ári.

Klifursteinn og minnisvarði um brostin loforð        

Meðal kosinna verkefna núna eru hjólaviðgerðarstandar, parkoursvæði, sleðabrekka, Seljagarður, ærslabelgur, ávaxtatré, klifursteinn, mýkri gönguleiðir, smábókasafn og minnisvarði um brostin loforð Reykjavíkurborgar.

Árbær – verkefni kosin til framkvæmda:

  1. Þrískiptar flokkunartunnur
  2. Hjólaviðgerðarstandur
  3. Aðgengi og aðstaða hjá bæjarperlunni Rauðavatn.
  4. Niðurgrafin trampolín
  5. Meiri gróður í hverfið – skjól fyrir vindi
  6. Fjölgun bekkja í Elliðaárdal
  7. Lagfæra útisvæði leikskólans Rauðhóls
  8. Bætt gönguþverun við Árvað
  9. Frisbígolfkörfur við skóla

Breiðholt – verkefni kosin til framkvæmda:

  1. Seljagarður – Lítill fjölskyldugarður í hjarta Seljahverfis
  2. Bætt gönguþverun við Krónuna í Seljahverfi
  3. Niðurgrafin trampólín
  4. Lýsing á göngustíg/tröppur frá Grjótaseli niður í Seljadal
  5. Parkoursvæði
  6. Gönguleið milli Seljahverfis og Hvarfa
  7. Endurtyrfa fótboltavöll við Bakkasel
  8. Bekkir og ruslatunnur í Bakkana
  9. Hraðatakmarkandi aðgerðir við undirgöng undir Stekkjarbakka
  10. Körfuboltaspjöld í Breiðholtslaug

Grafarholt og Úlfarsárdalur – verkefni kosin til framkvæmda:

  1. Sleðabrekka í Úlfarsárdal
  2. Fleiri ruslatunnur í Grafarholtið
  3. Niðurgrafin trampólín
  4. Fleiri tré við Reynisvatn
  5. Gönguleiðakort
  6. Gróðursetning við Úlfarsfell
  7. Ruslatunnur í Úlfarsárdal

Grafarvogur - verkefni kosin til framkvæmda:

  1. Fegra umhverfið í Spönginni
  2. Ærslabelgur við Gufunesbæ
  3. Lítill almenningsgarður
  4. Púttvöllur fyrir alla íbúa Grafarvogs
  5. Infrarauð sauna í Grafarvogslaug
  6. Gufunesbær - leiktæki
  7. Göngustígur meðfram Skemmtigarðinum í Gufunesi
  8. Salerni í Gufunes
  9. Tveir bekkir við voginn

Háaleiti og Bústaðir – verkefni kosin til framkvæmda:

  1. Bæta grenndargáma við Grímsbæ
  2. Gróðursetja rabbarbara og berjarunna víða um hverfið
  3. Hjólapumpa við Rauðagerði
  4. Göngustígur á hæðinni austan við Réttarholtsskóla
  5. Bæta aðstöðu gangandi vegfarenda yfir Kringlumýrarbraut
  6. Umferðarspeglar við hornið á Hamarsgerði og Réttarholtsvegi
  7. Endurbæta fótboltavöll milli K- og H-landa
  8. Klára göngustíg milli Síðumúla og Háaleitisbrautar
  9. Ávaxtatré í Fossvogsdal
  10. Frisbígolfkörfur við skóla
  11. Örugg gönguleið – hitaveitustokkur
  12. Grill og leiktæki í garðinn fyrir aftan Miðbæ

Hlíðar – verkefni kosin til framkvæmda:

  1. Lagfæra göngustígs frá Hlíðum yfir í Öskjuhlíð
  2. Endurbætur á leikvelli á Klambratúni
  3. Bekkir fyrir framan Kjarvalsstaði
  4. Klifursteinn fyrir krakka og fullorðna
  5. Langborð á Klambratún
  6. Lagfæring göngustíga á Klambratúni
  7. Niðurgrafin trampolín
  8. Hlaupabraut kringum Klambratún
  9. Breikka göngustíg á milli Skógarhlíðar og Eskihlíðar
  10. Bætt gönguþverun við Bónus, Skipholti
  11. Hraðamerkingar málaðar á vistgötur í Suðurhlíðum

Kjalarnes – verkefni kosin til framkvæmda:

  1. Niðurgrafin trampólín
  2. Klifurgrind
  3. Minnisvarði um brostin loforð Reykjavíkurborgar

Laugardalur – verkefni kosin til framkvæmda:

  1. Lýsing á malarstígum í Laugardalnum
  2. Fleiri bekkir fyrir gangandi vegfarendur
  3. Ungbarnarólur á leikvelli
  4. Lagfæring á lóð Langholtsskóla vegna vatnssöfnunar
  5. Bæta lýsingu á göngustíg frá Glæsibæ að Langholtsskóla
  6. Körfuboltavöllur
  7. Fótboltamark við Ljósheimaróló

Miðborg – verkefni kosin til framkvæmda:

  1. Endurbætur á gangstéttum víðsvegar um Þingholtin
  2. Bæta gönguleiðir skólabarna
  3. Þrískiptar flokkunartunnur við Sundhöll Reykjavíkur
  4. Líflegir almenningsbekkir
  5. Endurbætur á Einarsgarði v/Laufásveg
  6. Vegglistaverk
  7. Bætt umferðaröryggi við Laufásborg
  8. Viðgerðarstandur fyrir reiðhjól við Nauthólsvík
  9. Niðurgrafin trampólín

Vesturbær – verkefni kosin til framkvæmda:

  1. Þrískiptar ruslatunnur
  2. Mýkri gönguleiðir í Vesturbæjarlaug
  3. Ruslafötur
  4. Niðurgrafin trampólín
  5. Lífga upp á Aparóló
  6. List í almenningsrými
  7. Hreinsun veggjakrots
  8. Háar rólur nálægt hafi
  9. Strandlíf hjá grásleppuskúrunum við Grímstaðarvör
  10. Setbekkur á hornið við Öldugötu 25
  11. Matjurtagarð í portið hjá Verkamannabústöðunum
  12. Frisbígolfkörfur við skóla
  13. Hringekja með hjólastólaaðgengi
  14. Smábókasafn

Nánari samantekt á niðurstöðum eftir helgi   

Kjörnefnd fór yfir talningu atkvæða á fundi sínum í dag og reyndist allt hafa gengið vel fyrir sig í þessari áttundu vefkosningu af þessu tagi.

Íbúar gátu kosið oft, þ.e. breytt atkvæði sínu ef þeir vildu svo og gilti þá síðast greidda atkvæðið. Mjög margir nýttu sér þennan möguleika en engin álitamál voru uppi við skoðun kjörnefndar. Þá var farið sérstaklega yfir stjörnumerkingar, en með henni gátu íbúar gefið verkefni tvöfalt atkvæði.

Nánari samantekt kjörnefndar verður birt fljótlega í næstu viku á vefsvæðinu https://reykjavik.is/hverfid-mitt-2019