No translated content text
Starfsmenn Reykjavíkurborgar fara nú um borgina og skoða hvar trjágróður vex inn á stíga og götur. Gróður sem tilheyrir borginni er klipptur og eigendur garða þar sem trjágróður vex út fyrir lóðarmörk eru látnir vita.
Reykjavíkurborg hvetur garðeigendur til að klippa þann trjágróður sem vex út fyrir lóðarmörk og hindrar vegfarendur, hylur umferðarskilti eða götulýsingu.
Eftirfarandi ættu garðeigendur að hafa í huga:
- Umferðarmerki séu sýnileg.
- Gróður byrgi ekki götulýsingu.
- Gangandi og hjólandi eigi greiða leið um gangstíga.
- Þar sem vélsópar og snjóruðningstæki fara um má lágmarkshæð gróðurs yfir stígum ekki vera lægri en 2,8 metrar.
- Yfir akbrautum má gróður ekki slúta niður fyrir 4,2 metra og gildir þessi hæðarregla einnig þar sem sorphirðubílar, slökkvilið og sjúkrabílar þurfa að komast eftir stétt eða stíg.
Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar eða koma ábendingum á framfæri geta hringt í síma 411 11 11 eða sent skeyti á upplysingar@reykjavik.is
Trjágróðri sé haldið innan lóðarmarka
Byggingarreglugerð setur garðeigendum þá skyldu á herðar að halda gróðri innan lóðarmarka. Í reglugerðinni nr. 112/2012 gr. 7.2.2 segir: „Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa eða runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götu, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun".
Nánar á upplýsingasíðu: Trjágróður út fyrir lóðarmörk