Huga að aðgengi á hönnunarstigi

Mannréttindi

""

Það var hugur í mönnum á málþingi Öryrkjabandalagsins, Stóra bílastæðamálinu, í gær þar sem meðal annars voru kynntir vinningshafar Aðgengisviðurkenningar Reykjavíkurborgar í ár.

Borgarstjóri afhenti þeim Áslaugu Katrínu Aðalsteinsdóttur og Berglindi Hallgrímsdóttur hjá verkfræðistofunni Verkís viðurkenninguna í ár. þær hafa látið sig aðgengismál varða með ýmsum hætti og upp úr standa tvö veigamikil verkefni sem þær hafa átt frumkvæði að.  Algild hönnun umferðarmannvirkja – samanburður á norrænum hönnunarreglum, ítarlega úttekt á hönnunarreglum og stöðlum sem lúta að algildri hönnun í útiumhverfi í Svíþjóð, Danmörku og Noregi. Seinna verkefnið, Hönnun fyrir alla í útiumhverfi – handbók, sem styðst við hið fyrra og snýr að gerð handbókar sem löguð er að íslenskum aðstæðum um hönnun fyrir alla í útiumhverfi, þar með talið samgöngumannvirkjum eins og bílastæði fyrir fatlað og hreyfihamlað fólk.

Í rökstuðningi með viðurkenningunni segir; „Það er mikill ávinningur í því fólginn fyrir skipulagsyfirvöld, hönnuði og framkvæmdaraðila að hafa samræmdar leiðbeiningar um góða hönnun sem tekur tillit til allra sem njóta og nýta manngert umhverfi. Því er mikilvægt að veita þeim  viðurkenningu sem stuðla að bættu aðgengi af eigin frumkvæði og um leið hvetja fleiri til dáða.  Áslaug og Berglind eru því vel að Aðgengisviðurkenningu Reykjavíkurborgar komnar og  þær eru öðrum góð fyrirmynd þegar kemur að því að bæta hag og aðstæður fólks svo að allir geti notið sín í því fjölbreytta samfélagi sem við viljum búa í“.

Áslaug Katrín og Berglind kynntu fyrir gestum hvernig kröfur og leiðbeiningar um bílastæði eru í aðgengishandbók sinni. Á málþinginu var einnig kynnt nýtt merki fyrir hreyfihamlaða og óhætt að segja að ásýndin er allt önnur því það er mikil hreyfing og kraftur í nýju merki.  Goddur, prófessor við Listaháskóla Íslands flutti erindi ásamt Rúnari Birni Herrera, formanni málefnahóps ÖBÍ um sjálfstætt líf, um nýtt merki og ásýnd þess. Einnig voru kynningar um réttindi og skyldur, útgáfu stæðiskorta, reglur fjöleignarhúsa um bílastæði hreyfihamlaðra og rafbíla.