Hönnunarsamkeppni um Fossvogslaug

Stjórnsýsla Mannlíf

""

Kópavogur og Reykjavík sameinast um sundlaug í Fossvogi.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um að finna nýrri sameiginlegri sundlaug bæjarfélaganna stað um miðbik Fossvogsdals í göngufæri frá grunnskólum dalsins, Snælandsskóla og Fossvogsskóla.

Til að kalla fram bestu lausnir í verkefninu ætla sveitarfélögin að efna sameiginlega til hönnunarsamkeppni um Fossvogslaug í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. Skipaður verður undirbúningshópur beggja sveitarfélaga með aðkomu skipulags, íþrótta- og tómstundasviða og skólasviða til að leggja grunn að keppnislýsingunni.

Stefnt er að því að sundlagin verði byggð samkvæmt grænum stöðlum og að bílastæði verði eingöngu fyrir fatlað fólk og aðföng. Að öðru leyti mun laugin þjóna nærliggjandi hverfum og gangandi og hjólandi gestum.

Áætlun um framkvæmdir verður gerð þegar hönnun, endanleg kostnaðaráætlun og fjármögnun vegna laugarinnar liggur fyrir. Gert er ráð fyrir að kostnaður skiptist til helminga, óháð endanlegri staðsetningu laugarinnar. Búist er við að aðgengi og umferð verði sá þáttur hönnunarsamkeppninnar sem verði hvað viðkvæmastur.

„Fossvogsdalur er einstakt svæði, skjólgott og gróðursælt og þarf hönnun sundlaugarmannvirkis, nánari staðsetning og aðkomuleiðir að taka tillit til þeirra sérstöðu sem staðsetningin felur í sér," segir í sameiginlegri niðurstöðu skipulagssviða sveitarfélaganna.

Ljóst er að staðsetning Fossvogslaugar kallar á breytingu á skipulagi beggja sveitarfélaga, en þau hafa sameiginlega verið með breytingar á heildardeiliskipulagi dalsins í undirbúningi um hríð. Skipulagsvinnu verður lokið þegar niðurstaða hönnunarsamkeppni Fossvogslaugar liggur fyrir.