Hljómsveitin RetRoBot frá Selfossi sigraði Músíktilraunir 2012
Hljómsveitin RetRoBot frá Selfossi fór með sigur af hólmi á úrslitakvöldi Músíktilrauna 2012 sem fram fór í Austurbæ síðastliðið laugardagskvöld. Alls 10 hljómsveitir tóku þátt í úrslitakvöldinu en það voru auk RetRoBot : White Signal, Icarus, The Lovely Lion, The Young and Carefree, Funk that Shit!, Aeterna, Glundroði, Þoka og Hindurvættir. Húsfyllir var og mjög mikil stemning enda voru hljómsveitirnar hver annarri betri og sátu dómarar lengi á rökstólum áður en úrslitin voru tilkynnt. Niðurstaðan var eftirfarandi:
1. Sæti: RetRoBot frá Selfossi
2. Sæti: Þoka frá Reykjavík
3. Sæti: Funk That Shit !, frá Sauðárkróki
Ennfremur voru veitt verðlaun í átta öðrum flokkum:
Hljómsveit fólksins: White Signal
Gítarleikari Músíktilrauna er Reynir Snær Magnússon úr Funk that Shit!
Bassaleikari Músíktilrauna er Guðmundur Ingi Halldórsson úr Funk that Shit!
Hljómborðsleikari Músíktilrauna er Heimir Klemenzson úr Þoku
Söngvari Músíktilrauna er Agnes Björgvinsdóttir úr Þoku
Trommari Músíktilrauna er Sólrún Mjöll Kjartansdóttir úr White Signal
Rafheili Músíktilrauna er Daði Freyr Pétursson úr RetRoBot
Textagerð á íslensku er Lena Mist Skaptadóttir úr Ásjón
Óttarr Proppé, formaður skóla- og frístundasviðs afhenti sigurvegurunum verðlaunin og voru liðsmenn RetRoBot að vonum ánægðir með sigurinn.
Reykjavíkurborg óskar öllum til hamingju !
Sjá fréttir og myndir á heimasíðu: www.musiktilraunir.is.