Hjólastígur formlega opnaður í Samgönguviku

Hjólaborgin Samgöngur

Nýr hjólastígur

Nýr hjólastígur, sem er hluti af leið sem liggur frá Höfðabakka að Breiðholtsbraut í Elliðaárdal, verður opnaður formlega í Samgönguviku 2022, laugardaginn 17. september. Þessi spölur heyrir undir Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og ríkisins og er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar. Borgin hefur séð um framkvæmdir. Stígurinn hefur verið opinn fyrir umferð frá því í sumar en framkvæmdin er liður í því að aðskilja gangandi og hjólandi umferð í dalnum.

Fjölbreyttur ferðamáti

„Veljum fjölbreytta ferðamáta“ er yfirskrift Samgönguviku í ár, en hún hefst 16. og stendur til 22. september. Þema ársins 2022 er „virkari samgöngur". Vísar yfirskrift Samgönguvikunnar til þess ávinnings sem er af því að einskorða sig ekki við eina tegund samgangna heldur nýta til fulls þá möguleika sem ólíkir samgöngumátar bjóða upp á.

Viðburðir verða haldnir á vegum félagasamtaka og sveitarfélaga, en nálgast má upplýsingar um dagskrána á Facebook síðu vikunnar.

Hjólalest á laugardegi og stígur opnaður

Meðal annars verður efnt til hjólaævintýris á höfuðborgarsvæðinu þar sem boðið er til samhjóls og verða sveitarfélögin tengd saman í þremur hjólalestum sem hjóla frá bæjarskrifstofunum í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Seltjarnarnesi, Reykjavík og Mosfellsbæ.

Hjólalestirnar munu hittast við við Gömlu vatnsveitubrúna í Elliðaárdal (aftan við Árbæjarlaug). Áætlaður komutími lestanna er 15:00 til 15:10. Þar verður boðið upp á frían ís frá Skúbb. Þar munu fulltrúar Reykjavíkurborgar, Vegagerðarinnar og Betri samgangna opna áðurnefndan hjólastíg formlega sem liggur um Elliðaárdalinn og bjóða upp á kleinur og svaladrykk.

Vikunni lýkur á Bíllausa deginum, 22. september, þegar almenningur er hvattur til þess að skilja bílinn eftir heima og til að auðvelda það býður Strætó ókeypis í strætó á höfuðborgarsvæðinu. Samgöngustofa mun svo standa fyrir Umferðarþingi föstudaginn 23. september.