Hækkun á styrk svifryks við umferðargötur

Heilbrigðiseftirlit Umhverfi

""

Styrkur svifryks fer hækkandi í Reykjavík og má búast við að svo verði fram eftir degi. Þau sem eru viðkvæm fyrir ryki ættu að forðast göngur í nánd við umferðargötur. Ágætt er að nota almenningssamgöngur. 

4. janúar: Styrkur svifryks (PM10) hefur farið hækkandi það sem af er degi samkvæmt mælingum í mælistöðvum við Grensásveg, Hringbraut og Eiríksgötu. Klukkan 13. var hálftímagildi svifryks við Grensásveg 98 míkrógrömm á rúmmetra. Í mælistöð við Hringbraut var hálftímagildið á sama tíma 142 míkrógrömm á rúmmetra og við Eiríksgötu 66 míkrógrömm á rúmmetra. Nú er hægur vindur og kalt, götur þurrar og litlar líkur á úrkomu fyrr en á laugardag. Búist er við svipuðum veðurfarsaðstæðum og því líkur á svifryksmengun við umferðargötur.

Þau sem eru viðkvæm í öndunarfærum ásamt börnum ættu því að forðast útivist í nágrenni við umferðagötur. Sólarhrings heilsuverndarmörkin fyrir svifryk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á http://reykjavik.is/thjonusta/loftgaedi-i-reykjavik. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík. Loftgæðafarstöðvar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur eru nú staðsettar við leikskólann Grænuborg við Eiríksgötu og við Hringbraut 26.

Tengill

Loftgæði