Hækkun á styrk svifryks í borginni

Mynd af umferð á Fríkirkjuvegi í þurru og köldu veðri.

Styrkur svifryks (PM10) var hár á nokkrum mælistöðvum í borginni í kjölfar morgunumferðar, 11. mars.

Í dag er vindhraði aðeins um 4 m/s skv. veðurstöðvum Veðurstofu Íslands. Klukkan 10:00 var klukkustundargildi svifryks við Grensásveg 184 míkrógrömm á rúmmetra og 101,2 míkrógrömm á rúmmetra við Vesturbæjarlaug en klukkan 9 var styrkurinn 77 míkrógrömm á rúmmetra við leikskólann Lund. Þar sem aðeins er hægur vindur, götur þurrar og ekki líkur á úrkomu í dag er líklegt að styrkur svifryks fari hækkandi í tengslum við eftirmiðdagsumferðina. Gert er ráð fyrir svipuðu veðri næstu daga og því líkur á að styrkur svifryks verði áfram hár og þjóðvegir í þéttbýli og helstu stofngötur verða því rykbundnar í nótt til að draga úr uppþyrlun.

Svifryk er fínasta gerð rykagna sem eiga greiða leið í öndunarfærin en heilsuverndarmörk miðast við 50 míkrógrömm á rúmmetra á sólarhring fyrir PM 10 (svifagnir um 10 míkrógrömm að stærð). Helsti uppruni svifryks er uppspænt malbik, sót aðallega frá díselbruna, jarðvegsagnir, salt, aska o.fl.

Almenningur er einnig hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins ef unnt er, s.s. geyma ferðir sem ekki eru aðkallandi, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Skorað er á fyrirtæki að hvetja starfsfólk til að vinna fjarvinnu sé þess kostur og draga úr akstri ef hægt er. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, aldraðir og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna. 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgæði.is. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík og annars staðar á landinu.