Hækkun á styrk köfnunarefnisdíoxíðs í borginni

Heilbrigðiseftirlit

""

Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) er hár í borginni í dag, 4. febrúar, skv. mælingum í mælistöðinni við Grensásveg. Styrkur efnisins hefur verið hár undanfarna daga.

Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er mest á morgnanna og í eftirmiðdaginn þegar umferð er mest. Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í dag og umtalsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg.  Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra. 

Köfnunarefnisdíoxíð veldur ertingu í lungum og öndurvegi.  Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna.  Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hvetur fólk til að draga úr akstri eins og unnt er og nýta sér almenningsamgöngur og aðra vistvænni ferðamáta til að draga úr mengun.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk köfnunarefnisdíoxíðs og annarra mengandi efna á www.loftgaedi.is.