Götulokanir á Þorláksmessu 2023

Göngugötur Mannlíf

Þorláksmessulokun

Meginhluta Laugavegar í miðborginni og nærliggjandi götum verður lokað fyrir akandi umferð á Þorláksmessu, 23. desember. Lokanirnar eru í samráði við Lögregluna á Höfuðborgarsvæðinu og taka þær gildi klukkan 14 og standa til miðnættis.

Hægt verður að komast út af svæðinu um eftirfarandi gatnamót:

  • Barónsstíg við Laugaveg
  • Þingholtsstræti við Bankastræti
  • Hverfisgötu við Ingólfsstræti
  • Hverfisgötu við Frakkastíg

Friðargangan

Friðargangan er venju samkvæmt á Þorláksmessu og má búast við töfum á umferð á gatnamótum Snorrabrautar og Laugavegar og Lækjargötu og Bankastrætis í tengslum við gönguna. Lögreglan mun stöðva umferð á meðan að gangan fer yfir Snorrabraut og þegar gangan fer yfir Lækjargötu.

Fólk safnast saman klukkan 17.45 á nýja Hlemmsvæðinu (á milli Hlemms og Snorrabrautar) og leggur gangan af stað klukkan 18. Gengið er sem leið liggur á Austurvöll þar sem fer fram stuttur fundur.