Gosmóða og gasmengun yfir höfuðborginni

Heilbrigðiseftirlit Loftslagsmál

Varað er við slæmum loftgæðum á höfuðborgarsvæðinu í dag vegna gosmóðu frá eldgosinu við Sundhnúksgígaröð.
Horft yfir hús og tré mistur í lofti

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vill vara við að gosmóða og gasmengun liggur nú yfir höfuðborginni en ríkjandi sunnanátt ber gosmengun til norðurs. Mun það ástand vara fram eftir degi samkvæmt Veðurstofu Íslands en með aukinni úrkomu og vindi ættu loftgæði að batna eftir því sem líður á daginn. Gosmóða inniheldur mengun sem hefur náð að umbreytast meðal annars í SO4 (súlfat) og greinist hún því ekki með hefðbundnum mælingum á  brennisteinsdíoxíði (SO2) en mælingar á fínna svifryki gefa vísbendingar um að þessi mengun sé til staðar. Nú í morgun mælast hækkuð gildi af fínna svifryki og einnig hækkuð gildi brennisteinsdíoxíðs sem berst frá eldgosinu.   

Gosmóða eða blámóða (Volcanic smog) er loftmengun sem verður til þegar SO2, önnur gös og agnir hvarfast við súrefni og raka með tilstuðlan sólarljóssins.  Hún hefur einkennandi blágráan lit sem myndast er sólarljósið brotnar á ögnum/úða. Gosmóða getur orsakað slen, höfuðverk, ertingu í augum og hálsi auk flensueinkenna. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu.  Þeir sem eru síður viðkvæmir geta einnig fundið fyrir einkennum og ættu einnig að takmarka áreynslu utandyra. Ekki er mælt með því að láta ung börn sofa úti í vagni við þessar aðstæður.

Almennar ráðleggingar varðandi gasmengun eru eftirfarandi:

  •  Lungna og hjartasjúklingar hafi sín lyf tiltæk.
  • Andið sem mest með nefi og forðast líkamlega áreynslu utandyra í mikill mengun því það dregur úr þeim styrk sem kemst niður í lungu.
  • Dvöl innanhúss með lokaða glugga og slökkt á loftræstingu veitir verulega vörn fyrir menguninni.
  • Athugið að rykgrímur veita enga vörn gegn gasmengun.
  • Ráðstafanir til varnar SO2 og annarri gosmengun mengun innandyra.
  • Lokaðu gluggum og minnkaðu umgengni um útidyr.
  • Hækkaðu hitastigið í húsinu.
  • Loftaðu út um leið og loftgæði batna utandyra.

Mælingar á loftgæðum eru aðgengilegar á vef Umhverfisstofnunar loftgæði.is, nánari leiðbeiningar um viðbrögð við styrk SO2 má fá með því að smella á tengil í vinstra horni síðunnar. Spár um gasmengun má sjá á vef Veðurstofunnar, en taka skal fram að hún tekur ekki til gosmóðu heldur aðeins beina mengun frá gosinu.