Gatnamót Bústaðavegar og Háaleitisbrautar endurgerð

Framkvæmdir

Kort af gatnamótum Bústaðar og Háaleitisbrautar.
Kort af gatnamótum Bústaðar og Háaleitisbrautar.

Til stendur að endurgera gatnamót Bústaðavegar og Háaleitisbrautar á næstunni og verða aðliggjandi götur og gangstéttir aðlagaðar í leiðinni. Þá verða umferðarljós og gatnalýsing endurnýjuð ásamt umferðarmerkjum og yfirborðsmerkingum. 

Göngu- og hjólastígar aðskildir

Öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda um gatnamótin verður bætt verulega með aðskildum göngu- og hjólastígum og endurnýjaðri ljósastýringu. Biðstöðvar strætó verða færðar til og gangbraut yfir götuna endurgerð vegna þrengingar Háaleitisbrautar ofan við Bústaðaveg.

Framkvæmdin er á vegum umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar í samvinnu við Veitur. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í september og ljúki í desember. Loka þarf fyrir umferð í fáeinar vikur um Háaleitisbraut neðan Bústaðavegar meðan hitaveitulagnir eru endurnýjaðar. Nákvæm tímasetning mun liggja fljótlega fyrir. Hjáleiðir verða um Áland og Eyrarland og/eða Fossvogsveg á meðan. Að öðru leyti verður opið fyrir umferð um svæðið.

Aðkoma neyðarbíla að LSH Fossvogi verður greið allan framkvæmdatímann.

Raski fyrir íbúa haldið í lágmarki

Framkvæmdir í grónum hverfum valda alltaf einhverju raski hjá íbúum nærliggjandi húsa. Reynt verður eins og kostur er að halda raski í lágmarki en óhjákvæmilega verður eitthvað ónæði af framkvæmdinni fyrir íbúa. Ef einhverjar spurningar vakna eða íbúar vilja koma ábendingum á framfæri er hægt að hafa samband við þjónustuver Reykjavíkurborgar í síma 411 1111.

Verktakinn er Stjörnugarðar ehf og má búast við að framkvæmdin sjálf hefjist í september.

Verkið í framkvæmdasjá: Bústaðavegur (418), Reykjavík Gatnamót við Bústaðaveg og Háaleitisbraut

Spurt og svarað

Aðgerðirnar eiga að draga úr hraða og bæta umferðaröryggi allra vegfarenda. Það telst öryggisatriði að huga að gangandi og hjólandi vegfarendum og þessar aðgerðir snúast meðal annars um það, bæði á gatnamótunum og við gönguþverun yfir Háaleitisbraut.

1. Hvers vegna á að þrengja Háaleitisbraut ofan Bústaðavegar og hvernig verður það gert – er það til beggja átta?

  • Ekki er metin þörf á því að hafa 2+2 akreinar á þessum vegi m.t.t. umferðarmagns sem um þennan veg fer. Akvegurinn verður með 1+1 akrein þar sem gönguleið þverar götuna.  
  • Verið er að bæta aðgengi og öryggi gangandi/hjólandi með þessari aðgerð sem tengir við aðliggjandi stíg eftir Álmgerði/Hæðargarð og RUV reit.
  • Þar sem loka á framhjáhlaupi í gatnamótum við Bústaðaveg verður Háaleitisbraut einnig þrengd um eina akrein til norðurs, að öðru leyti verður áfram sami akreinafjöldi og nú í aðdraganda gatnamótanna.
  • Sambærileg aðgerð þrengingar hefur þegar verið gerð á Háaleitisbraut norðan við Austurver í sama tilgangi

2. Stendur til að fækka akreinum að öðru leyti á Bústaðavegi eða annars staðar í grenndinni?

  • Ekki verður átt við akreinafjölda á Bústaðavegi, en tvö framhjáhlaup í gatnamótunum verða lögð niður, líkt og gert var á gatnamótum Grensásvegar/Bústaðavegi.

Grunnmynd frá VERKÍS