Fyrirhugað allsherjarverkfall Eflingar mánudaginn 17. febrúar

Velferð Umhverfi

""

Fyrirhugað allsherjarverkfall félagsmanna Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg hefst á miðnætti aðfararnótt mánudags 17. febrúar.

Fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir Eflingar eru ótímabundnar. Þær munu að öllu óbreyttu hafa áhrif á vistun allra leikskólabarna í borginni vegna minni þjónustu. Verkfallið hefur áhrif á 1.650 notendur velferðarþjónustu borgarinnar. Eftir því sem verkfallið lengist mun það hafa áhrif á sorphirðu í Reykjavík og aðra umhirðu borgarlandsins.

Um 1.850 manns í Eflingu starfa hjá borginni á um 129 starfsstöðvum.

Áhrif á skóla og velferðarþjónustu

Áfram verða áhrif verkfallsaðgerða Eflingar mest á leikskólana auk matarþjónustu í grunnskólum. Þau börn sem fá vistun í leikskólum verður skipt upp í hópa og er sums staðar hafður sá háttur á að einn hópur fær vist fyrir hádegi og annar eftir hádegi eða skipt niður á daga vikunnar.    

Fyrirséð er að matarþjónusta í einhverjum grunnskólum borgarinnar raskast og þurfa nemendur þar að koma með nesti í skólann. Eftir því sem verkfallið stendur lengur yfir mun það einnig hafa áhrif á þrif einhverra grunnskóla sem gætu þurft að loka, í það minnsta tímabundið.

Velferðarsvið hefur fengið undanþágur frá verkfallsaðgerðum fyrir starfsfólk Eflingar sem sinnir viðkvæmustu þjónustunni er snýr að umönnun fatlaðs fólks, aldraðra á hjúkrunarheimilum og í heimahúsum, barna og fólks sem þarf á neyðarþjónustu að halda í gistiskýlum. Ljóst er að lengra verkfall mun hafa meiri áhrif á þá sem njóta velferðarþjónustu frá borginni. Þrif á heimilum fatlaðs fólks og eldri borgara í heimahúsum falla niður, sömuleiðis aðstoð við böðun. Ekki verður hægt að kaupa máltíðir á félagsmiðstöðvum og þá verður dagdvöl aldraðs fólks í Þorraseli lokuð á meðan verkfalli stendur.

Áhrif á þjónustu við borgarlandið

Á meðan verkfallið stendur yfir mun þjónusta við borgarlandið skerðast þannig að ákveðnum verkum verður ekki sinnt.  Má þar m.a. nefna:

  •  Viðgerðir á brotholum í malbiki á götum í umsjón Reykjavíkurborgar.
  • Afmarkaðir þættir í vetrarþjónustu. 
  •  Ruslastampar í borgarlandinu verða ekki tæmdir.
  •  Hreinsun í kringum grenndargáma verður ekki sinnt.
  •  Almennri hreinsun borgarlandsins verður ekki sinnt.
  •  Öllu minna viðhaldi á götugögnum verður ekki sinnt t.d. á hellulögðu yfirborði og götu- og gangstéttaköntum.
  •  Verkefnum sem tengjast óveðri, t.d. vegna asahláku, foki á veg sem hindrar umferð, stífluðum niðurföllum, pollamyndun og fleiru.
  •  Lausir hestar verða ekki handsamaðir né önnur dýr í lausagöngu sem kunna að valda truflunum.

Á meðan verkfall Eflingar stendur yfir óska borgaryfirvöld eftir því að íbúar fari varlega þegar þeir eru á ferð um borgina, gangi vel um grenndargáma og ruslastampa og hafi gát á sér og sínum.  

Foreldrar/forráðamenn greiða ekki leikskólagjöld fyrir þá daga sem verkfall stendur yfir og ekki heldur fyrir máltíðir sem falla niður í grunnskólum.