Fundað með fulltrúum atvinnulífsins

Stjórnsýsla Atvinnumál

""

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs, stendur fyrir fundaröð með fulltrúum atvinnulífsins í borginni.

Fundaröð Reykjavíkurborgar með fulltrúum atvinnulífsins heldur áfram og í morgun var fundað með Félag kvenna í atvinnulífinu í Höfða.

Reykjavíkurborg hefur staðið fyrir fundaröð með fulltrúum úr atvinnulífinu og hefur Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs skipulagt og leitt fundina sem fara fram í Höfða.

Í morgun fór fram fundur með fulltrúum frá Félagi kvenna í atvinnulífinu FKA.

Tilgangur fundanna er að halda áfram reglubundnu samtali og samráði við fulltrúa atvinnulífsins með það að markmiði að borgin og atvinnulífið í Reykjavík skilji betur gagnkvæmar þarfir og væntingar. Sambærilegir fundir hafa verið haldnir með Samtökum ferðaþjónustunnar SAF, Samtökum Iðnaðarins SI, Samtökum verslunar og þjónustu SVÞ  og Félagi Atvinnurekenda og er markmiðið að funda með fleiri hagaðilum í vetur.

Þórdís Lóa segir að fundirnir séu mjög gagnlegir fyrir Reykjavíkurborg sem hvetur til umræðu um þjónustu borgarinnar.  

„Við viljum gjarnan heyra um það sem betur má fara í samstarfi okkar við atvinnulífið og þjónustu við fyrirtækin í borginni og á öllu höfuðborgarsvæðinu. Það skiptir okkur miklu máli að atvinnulífið sé öflugt, atvinnustig hátt og samstarfið gott. Því hafa fundirnir verið mjög gagnlegir fyrir okkur í þeirri vegferð að auka samtal, samráð og samvinnu við alla aðila.  Samtal okkar við þessi hagsmunasamtök atvinnulífsins hefur verið afar mikilvægt og ég fagna því hversu vel forsvarsmenn þessara samtaka hafa tekið í þessa vinnu,“ segir Þórdís Lóa.