Framkvæmdir að hefjast á Austurhafnarsvæðinu

Skipulagsmál

""

Framkvæmdir eru nú að hefjast á Austurhafnarsvæðinu fyrir austan Tollhúsið. Bílastæðum bílastæðasjóðs á svæðinu verður því lokað frá og með fimmtudeginum 23. apríl.

Svæðið sem um ræðir er fyrir austan Tollhúsið en þar hafa verið 198 bílastæði. Bílastæðasjóður bendir á nærliggjandi bílastæði á Miðbakka, í bílastæðahúsunum í Kolaport og í Hörpu. Hægt er að nálgast upplýsingar um laus stæði í bílastæðahúsum Bílastæðasjóðs hér.

Framkvæmdaleyfi hefur verið veitt fyrir fornleifauppgreftri á svæðinu. Að honum loknum mun reiturinn fara í uppbyggingu og byggjast upp á næstu þremur árum.

Svæðið afmarkast af Geirsgötu til norðurs, Kalkofnsvegi og Lækjargötu til austurs, Hafnarstræti til suðurs og Tollhúsinu til vesturs.

Samkvæmt gildandi deiliskipulagi fyrir reitinn má byggja íbúðir og skrifstofuhúsnæði á reitnum, alls 21.400 m2 ofanjarðar.  Verslun og þjónusta er á jarðhæðum og má vera á neðstu tveimur hæðum. Göngugata verður í gegnum svæðið frá Lækjartorgi að Hörpu. Bílastæðakjallari verður undir reitnum og mun hann síðar tengjast bílakjallara undir reitum 5 og 6 á Austurhafnarsvæðinu, hinum megin við Geirsgötu og bílakjallara Hörpu.

Landstólpar eru rétthafar byggingarréttar og sjá um framkvæmdina.

Deiliskipulag Austurhöfn