Framkvæmdamet í Reykjavík

Samgöngur Umhverfi

""

Aldrei hefur Reykjavík lagt jafn mikið í uppbyggingu innviða og þjónustu eins og í ár, en fjárfest verður fyrir 20 milljarða króna. 

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kynnti fjárfestingar Reykjavíkurborgar á árlegu Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins í dag.  Uppbygging innviða er að stærstum hluta annars vegar fasteignir borgarinnar ásamt búnaði í þær og hins vegar gatnagerð og uppbygging í umhverfi íbúa.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir umfangsmiklar framkvæmdir í gangi hjá borginni. „Þar er fjárfestingin í íþróttamannvirkjum stærst að þessu sinni, en við erum með sérstaka áherslu á austurborgina með sundlaug í Úlfarsárdal og knatthús í Breiðholti sem stærstu verkefni. Við ætlum að reisa nýja hverfisbækistöð í Örfirisey og fara í viðhald á Borgarbókasafninu. Í velferðinni erum við að fjárfesta í smáhýsum fyrir skjólstæðinga velferðarsviðs og hjúkrunarheimili við Sléttuveg er að rísa. Þá erum við að opna nýjar leikskóladeildir og  taka í gegn skólalóðir. Svo setjum við 450 mkr í lagningu hjólastíga, byrjum að hanna Borgarlínu og meira en 1200 milljónir króna  í að malbika götur. Fjárfesting borgarinnar í innviðum af ýmsu tagi hafa aldrei verið umfangsmeiri,” segir Dagur.

Í ár verður fjárfest í fasteignum og stofnbúnaði fyrir 9 milljarða og þar af fara rúmir 3,4 milljarðar til íþrótta- og tómstundamála, en Íþróttamiðstöð í Úlfarsárdal og Íþróttamannvirki ÍR í Mjódd taka þar mest til sín. Framlög til skóla- og frístundamála nema tæpum 2,4 milljörðum og fer stór hluti til nýrra leikskóladeilda, auk þess sem settur er hálfur milljarður til endurgerðar leikskóla- og skólalóða.

Til gatna- og umhverfisframkvæmda í ár fara einnig um 9 milljarðar og þar af eru nærri 2,8 milljarðar til uppbyggingar í nýjum hverfum s.s. Vogabyggð, Gufunes, Hlíðarenda, Úlfarsárdal og Vesturbugt. Gatnagerð í Miðborginni verður einnig fyrirferðarmikil en haldið verður áfram með endurgerð Hverfisgötu, Frakkastígs, Tryggvagötu og aðrar framkvæmdir á Austurbakka og Austurhöfn  s.s. Steinbryggju. Samanlagt eru framlög til framkvæmda í Miðborginni 1,3 milljarður. Auk þessar miklu endurgerðar á götum verður haldið áfram með átak í malbikun gatna og verður rúmum 1,2 milljarði króna varið í það verkefni. Margvísleg umhverfis- og aðgengismál eru á listanum s.s. LED-væðing götulýsingar fyrir 440 milljónir og gerð göngu- og hjólastíga fyrir 450 milljónir. Borgarlínan er í ár á undirbúningsstigi en 200 milljónum verður ráðstafað til hennar.

Til annarra framkvæmda fara síðan 2,2 milljarðar króna og þar af er um milljarður í hugbúnað og tölvubúnað Reykjavíkurborgar. Þá hefur 450 milljónum króna verið ráðstafað í íbúalýðræðisverkefnið Betri hverfi.

Áframhaldandi fjárfestingar næstu fimm árin

Borgarstjóri fór einnig yfir fjárfestingaráætlun næstu ára. Borgin gerir ráð fyrir uppbyggingu innviða  fyrir 75 milljarða á fimm árum og eru það að stærstum hluta fasteignir og gatnagerð, sem og fjárfestingar í umhverfi borgaranna. Þegar horft er til fjárfestinga allrar samstæðu Reykjavíkurborgar, þ.e. Orkuveitunnar, Faxaflóahafna, Félagsbústaða, Sorpu og Strætó, nemur fjárfesting næstu fimm ára 195 milljörðum króna.

Nánari upplýsingar: