Fossvogsskóli uppfærður miðað við nútímakröfur

Skóli og frístund

""

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að taka allar þrjár byggingar Fossvogsskóla í gegn.

  • Allar þrjár byggingar skólans, Vesturland, Austurland og Meginland verða gerðar upp með tilliti til nútíma krafna í skólastarfi og byggingartækni
  • Skólastarfsemi verður í Korpuskóla næsta vetur
  • Rakaskemmdir eru til staðar í hluta bygginga sem ráðast þarf í lagfæringar á.
  • Fyrri endurbætur hafa skilað árangri og nýtast í nýjum framkvæmdum

Ljóst er að ekki hefur tekist að koma í veg fyrir rakaskemmdir og raka í öllum byggingum skólans. Auk þess að laga skemmdir og koma í veg fyrir myglu, leggur Efla til að farið verði í gagngerar endurbætur á öllum þremur byggingum skólans svo komið verði í veg fyrir framtíðarvandamál. Teymi sem stofnað var um húsnæði Fossvogsskóla mun fara yfir tillögur Eflu og vinna að gerð aðgerðaáætlunar á næstu dögum.

Framkvæmdum flýtt

Reykjavíkurborg hefur nú tekið þá ákvörðun að flýta þeim framkvæmdum við skólann sem voru fyrirhugaðar á næstu árum og uppfæra hann samkvæmt nútíma kröfum um byggingar og kennslufræði til þess að lágmarka eins og kostur er frekara rask á skólastarfi og tryggja hagkvæmni. Það þýðir að engin skólastarfsemi mun fara fram þar næsta skólaári. Á fundi skólaráðs Fossvogsskóla í kvöld var ekki tekin endanleg ákvörðun um tilhögun skólastarfs á næsta ári en unnið verður að því nota Korpuskóla eftir fremsta megni. 

Á fundum á morgun verða niðurstöður úttektarinnar og áform um framkvæmdir kynnt foreldrum og starfsmönnum skólans.

 Meðal þess sem felst í tillögum að framkvæmdunum er að:

·   Skipt verður um alla glugga

·   Skólinn klæddur og einangraður að utan

·   Loftræsikerfi og önnur lagnakerfi verða tekin í gegn

·   Skriðkjallarar verða lagfærðir og brunnar færðir út úr skólanum

„Það eru auðvitað veruleg vonbrigði að ekki hafi tekist alveg að koma í veg fyrir rakavandamál í skólanum með þeim aðgerðum sem farið var í. Hins vegar fagna ég því að niðurstaða og ákvörðun um að fara í gagngera endurgerð skólans liggi nú fyrir,“ segir Helgi Grímsson sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs. 

Fyrri endurbætur hafa skilað árangri og nýtast í nýjum framkvæmdum

Meginhluti framkvæmdanna felst í viðhaldi sem átti að ráðast í á næstu árum en verður nú flýtt samkvæmt nýrri viðhaldsáætlun fyrir skólahúsnæði í borginni. Enn er verið að vinna upp viðhaldsþörf sem skapaðist á árunum eftir hrun.

Reykjavíkurborg hefur nú þegar lagt talsverða fjármuni í endurbætur á Fossvogsskóla. Þær endurbætur munu standa að megninu til. Þar sem til stendur að skipta um glugga í byggingunum og loftræsikerfi mun eitthvað af fyrri framkvæmdum verða tekið upp. Einnig stendur til að lagfæra þök frekar og rakavarnir auk þess sem veðurhjúpur bygginganna verður endurnýjaður með nútíma efnum og einangrun að utan. Þá verða skriðkjallarar undir byggingunum lagfærðir og þéttir og brunnar sem nú eru inni í byggingunum færðir út úr húsum. 

Til stendur að nýta vistvæn og endingargóð byggingarefni við endurgerð húsnæðisins í anda Græna plansins og nútíma byggingartækni. 

„Við erum að fara að uppfæra allt húsnæðið að utan og innan. Það mun verða mjög krefjandi verkefni,“ segir Ámundi Brynjólfsson sem stýrir skrifstofu framkvæmda og viðhalds hjá umhverfis- og skipulagsviði.

Drög að samantekt Eflu um Fossvogsskóla - Lokaskýrsla er enn í vinnslu hjá Eflu.