Fleiri kvikmyndafyrirtæki kaupa í Gufunesi

Framkvæmdir Skipulagsmál

""

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að selja fyrirtækinu Loftkastalanum  þrjár fasteignir og byggingarrétt í Gufunesi.

Reykjavíkurborg hefur með stefnumörkun og skipulagssamkeppni ákveðið að á nýjum lóðum í Gufunesi komi starfsemi sem tengist aðallega kvikmyndagerð. Loftkastalinn er félag sem vinnur að nýsmiði, leikmyndagerð, nýsköpun og hönnun, þróun á vélum og verkfærum fyrir kvikmyndagerð.

„Það er frábært að sjá að nú þegar eru fyrirtæki í kvikmyndaiðnaði af öllum stærðum og gerðum að koma sér fyrir til framtíðar í Gufunesi,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

„Þarna er að verða til kvikmyndaþorp sem mun styrkja greinina enn frekar. Við lögðum upp með þetta á sínum tíma og gaman að sjá það verða að veruleika,“

Nú þegar hafa tvö fyrirtæki á vegum kvikmyndaiðnaðar keypt eignir á svæðinu og eru því ákveðin kjölfesta fyrir áframhaldandi þróun svæðisins. Tvö önnur fyrirtæki  sem sérhæfa sig í ljósa-, hljóð- og myndbúnaði hafa fengið lóðarvilyrði í Gufunesi. Það er því ljóst að mikil hreyfing er á þróun svæðisins en fyrirtæki Baltasars Kormáks hefur þegar hafist handa við að breyta gömlu Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi í kvikmyndaver sem verður eitt það stærsta sinnar tegundar í Evrópu.

Loftkastalinn greiðir 226 milljónir króna fyrir fasteignirnar og byggingarrétt með gatnagerðargjöldum.

Fasteignirnar eru gamalt sérhæft verksmiðjuhús sem hýsti á sínum tíma vissan hluta starfsemi áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi og birgðaskemmur Áburðarverksmiðjunnar.

Hlutar húsnæðisins eru með mikilli lofthæð sem getur t.a.m. hentað vel til leikmyndagerðar. Allar eignirnar þarfnast talsverðs viðhalds.