Fleiri íbúðir fyrir eldri borgara í Suður-Mjódd

Skipulagsmál

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Þórunn Sveinsbjörnsdóttir, formaður félags eldri borgara undirrituðu viljayfirlýsingu í frístunda- og félagsmiðstöðinni í Árskógum, 22. apríl sl. Reykjavíkurborg  lýsir yfir vilja til að úthluta lóð til Félags eldri borgara með byggingarrétti fyrir fjölbýlishús með allt að 50 íbúðum fyrir eldri borgara við Árskóga nr. 1-3 í Suður Mjódd.

Í leigusamningum um lóðina skal vera kvöð um byggingu og rekstur íbúða fyrir eldri borgara í samræmi við sérskilmála Reykjavíkurborgar um úthlutun lóða til félaga og samtaka eldri borgara fyrir íbúðir eldri Reykvíkinga, sem gilda er lóðinni verður formlega úthlutað.

Ákveðið er að breyta nokkuð gildandi deiliskipulagi lóða við Árskóga og tengigangi að þjónustumiðstöð við Skógarbæ. Reykjavíkurborg skuldbindur sig ekki til að kosta gerð tengigangsins.

Úthlutun lóðarinnar er með fyrirvara um endanlega niðurstöðu í nýju deiliskipulagi. 

Í yfirlýsingunni er sérstaklega fjallað um að hönnun íbúðarhúsnæðis verði í samræmi við markmið húsnæðisstefnu um fjölbreyttar húsagerðir, blöndun íbúðagerða innan hverfa og aukið framboð smærri íbúða, fyrir alla félagshópa.

Gildistími viljayfirlýsingarinnar er tvö ár frá undirritun hennar, en að þeim tíma liðnum áskilur Reykjavíkurborg sér rétt til að úthluta viðkomandi lóð með byggingarrétti til annarra uppbyggingaraðila hafi ekki verið gefið út úthlutunarbréf vegna lóðarinnar.