Kynnt hafa verið drög að tillögu Landslags ehf að nýju deiliskipulagi fyrir Elliðaárdal. Tillagan felur í sér meiri vernd og betra stígakerfi.
Nýtt deiliskipulag byggir á grunni eldra deiliskipulags, sem var samþykkt árið 1994. Töluvert samráð við helstu hagsmunaaðila á svæðinu hefur þegar átt sér stað um tillögugerðina.
Elliðaárdalurinn er mikilvægt útivistar- og náttúrusvæði í Reykjavík með ríka sögu og sterka ímynd meðal borgarbúa og á undanförnum árum hefur vægi og gildi dalsins innan borgarinnar aukist og fleiri hópar og einstaklingar nýta Elliðaárdalinn til útivistar, afþreyingar og sem samgönguleið.
Skilgreind eru í nýju skipulagi forsendur, viðfangsefni og markmið tillögunnar. Tillagan var kynnt í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkurborgar 15. janúar.
Viðfangsefni og markmið deiliskipulagsvinnunnar núna er að:
- Skilgreina aðalleiðir notendahópa um svæðið
- Bæta tengingar göngu- og hjólreiða; meta stígakerfi og mögulega þörf á nýjum stígum og brúm yfir árnar.
- Meta og endurskoða afmörkun hverfisverndarsvæðis og skilgreina í skipulagi.
- Vinna ítarlega náttúrufarsúttekt, þar með talið kortleggja jarðminjar, lykilvistgerðir, gróðurlendi og búsvæði dýra, einkum fugla. Meta verndargildi náttúruminja og leggja fram tillögur að verndarsvæðum.
- Vinna heildstæða fornleifaskýrslu og húsakönnun fyrir dalinn samhliða skipulagsvinnunni.
- Skilgreina rjóður og áningastaði
- Vinna með Orkuveitunni að ákvörðun um hreinsun ofanvatns úr götum áður en því er hleypt í árnar
- Taka saman upplýsingar um veiðistaði og aðgengi að þeim.
Elliðaárdalurinn hefur fjölmarga kosti og er vinsælt útivistarsvæði og áningarstaður, hann er mikilvægt fuglasvæði í borginni. Hólminn ofan stíflu er t.d. náttúrulega friðaður fyrir fugla. Elsti skógurinn í dalnum er frá því um 1950. Í dalnum er að finna fossa, skessukatla og tjarnir og náttúruminjar eins og hraunreipi, grettistök og grágrýtisurðir. Töluvert er um sögulegar minjar, friðaðar fornminjar, herminjar, ofl.
Leiðarljósin í deiliskipulaginu skiptast af þessum sökum í þrjá flokka:
- Náttúra og lífríki
- Útivist og upplifun
- Menning og arfleið
Varðandi hverfisvernd koma nokkrir kostir til greina, helst er stungið upp á kosti B (sjá tengil) um að hverfisvernd taki til svæða með hærra verndargildi, í þeim valkosti eru svæðin ármegin við stíganamörkin á verndarsvæðinu og allt svæði á milli stíganna.
Gert er ráð fyrir samfelldum hjólastíg upp allan dalinn að sunnan- og vestanverðu og að gerðar verði nýjar göngu- og hjólabrýr á völdum stöðum til að greiða leiðir þvert yfir dalinn.
Framundan er frekari kynning á endurskoðuðu deiliskipulagi og áframhaldandi samráð þar til nýtt deiliskipulag fyrir dalinn verður samþykkt.
Tenglar
Kynning: Endurskoðun á deiliskipulagi Elliðaárdals