Ekið upp hluta Laugavegar

Samgöngur Umhverfi

Litríkur hringur málaður á gatnamót Laugavegs og Frakkastígs

Á föstudag verða gerðar breytingar á akstursstefnu bíla um Laugaveg, en frá kl. 8.00 verður Laugavegur ekinn til austurs frá Klapparstíg upp að Frakkastíg.

Eins og áður er ekið niður Laugaveg frá Hlemmi, en nú má aðeins aka niður að Frakkastíg og þaðan er einstefna niður á Hverfisgötu. Fram til þessa hafa þeir sem óku niður Laugaveginn þurft að beygja niður Vatnsstíg þar sem göngugötusvæðið byrjaði. Í sumar er göngugötusvæðið á Laugavegi minnkað frá fyrra ári og nær nú aðeins upp að Klapparstíg.  

Með breytingu á akstursstefnu um hluta Laugavegar er verið að jafna umferðarflæðið um miðborgina og draga úr neikvæðum áhrifum bílaumferðar. Betra er að beina umferð frá Laugavegi niður Frakkastíg að Hverfisgötu en að fá hana upp Klapparstíg að Skólavörðustíg. Þá er minni hætta á að ökumenn aki í ógáti inn á göngusvæðið. Til að vekja athygli á breytingunni hefur verið málaður litríkur hringur á gatnamót Laugavegar og Frakkastígs.  Ökumenn sem vilja komast nær verslun og þjónustu á Laugavegi neðan við Frakkastíg aka nú upp Klapparstíg frá Hverfisgötu.

Umferðamerkingar verða settar upp nú í vikunni og afhjúpaðar á föstudagsmorgun. Tillaga um þessa breyttu tilhögun umferðar var samþykkt af skipulags- og samgönguráði í byrjun apríl og samþykkt af lögreglustjóra og auglýst í stjórnartíðindum 29.apríl 2019.

Tengt efni: