Einmanaleiki og sjálfsskaðandi hegðun ungs fólks er umtalsefni morgunverðarfundar Náum áttum hópsins, sem verður haldinn miðvikudaginn 8. mars frá 08.15-10.00 á Grand hóteli.
Ingibjörg Eva Þórisdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknum & greiningu, fjallar um andlega líðan ungmenna í framhaldsskóla.
Bóas Valdórsson, sálfræðingur í MH segir frá sálfræðiþjónustu í framhaldsskólum.
Að lokum heldur Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur og verkefnastjóri geðræktar hjá Embætti landlæknis erindi um líðan ungra Íslendinga.
Fundarstjóri er Bryndís Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Heimili og skóla. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. Skráningar eru á heimasíðunni www.naumattum.is. Þátttökugjald er 2.400 krónur en innifalið í því er morgunverður.