Listasafn Reykjavíkur býður börn á öllum aldri velkomin á Barnamenningarhátíð. Frumlegir og skemmtilegir viðburðir og námskeið í boði, þar á meðal spunaleikhús, teikninámskeið og listsmiðja fyrir frábæra únglínga.
Frítt inn á söfnin þrjú fyrir fullorðna í fylgd með börnum.

Dagskrá
25.-30. apríl
Ásmundarsafn
Myndarlegar þjóðsögur – sýning grunnskólabarna á frístundaheimilunum Draumaland, Eldflaugin og Halastjarnan.
Miðvikudag 26. apríl kl. 15.00
Ásmundarsafn
Teikninámskeið fyrir 8-12 ára. Áhugasamir mæti tímanlega, takmarkaður fjöldi þátttakenda.
Miðvikudag 26. og fimmtudag 27. apríl kl. 16.00-18.00
Hafnarhús
Það besta sem hefur komið fyrir heiminn eru únglíngar! Fjölbreytt tveggja daga listsmiðja og spunaleikhús fyrir 13-16 ára. Skráning: fraedsludeild@reykjavik.is
Fimmtudag 27. apríl kl. 15.00
Kjarvalsstaðir
Teikninámskeið fyrir 8–12 ára. Áhugasamir mæti tímanlega, takmarkaður fjöldi þátttakenda.
28.-29. apríl
Kjarvalsstaðir
Við erum ekki listalaus – sýning á samstarfsverkefni leikskólans Hlíð við Engihlíð og listamanna úr nágrenninu.
28.-30. apríl
Kjarvalsstaðir
Falinn Fjársjóður – sýning nemenda í Vogaskóla, Vesturbæjarskóla og Háaleitisskóla.
Föstudag 28. apríl kl. 14.00-17.00
Kjarvalsstaðir
Klambraflæði fyrir 7-12 ára – plötusnúðakennsla og rímnasmiðja undir leiðsögn fagmanna. Skráning á heimasíðu safnsins og á vef Barnamenningarhátíðar.
Föstudag 28. apríl kl. 15.00-17.00
Hafnarhús
Teikninámskeið fyrir 8-12 ára. Áhugasamir mæti tímanlega, takmarkaður fjöldi þátttakenda.
Laugardag 29. apríl og sunnudag 30. apríl kl. 11.00
Kjarvalsstaðir
Flóttamaðkarnir – leiksýning fyrir 4-9 ára eftir leikhópinn Sjónarspil með tónlist eftir Megas í lifandi flutningi.
Sunnudag 30. apríl kl. 11.00-14.00
Ásmundarsafn
Mörg sjónarhorn – listsmiðja fyrir 6-9 ára. Þátttakendur skapa sitt eigið hreyfilistaverk. Áhugasamir mæti tímanlega, takmarkaður fjöldi þátttakenda.
Sunnudag 30. apríl kl. 14.00-15.00
Kjarvalsstaðir
Vísnagull – þátttökutónleikar fyrir 1-3 ára og alla hina.