Búast má við svifryksmengun

Umhverfi

""

Styrkur svifryks (PM10) verður líklega yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag, mánudaginn 27. apríl. 

Í dag er nokkur vindur, götur þurrar og engar líkur á úrkomu. Næstu daga er áfram búist við þurrviðri og nokkrum vindi sem getur þyrlað upp ryki, sérstaklega við miklar umferðargötur.
Klukkan 11 var hálftímagildi svifryks við mælistöðina á Grensásvegi 46 míkrógrömm á rúmmetra og 95 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöð sem staðsett er við Bíldshöfða 2. Sólarhrings heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Í gær 26. apríl fór sólarhringsstyrkur svifryks yfir heilsuverndarmörkin við bæði Grensásveg og Bíldshöfða. Við Grensásveg var sólarhringsstyrkurinn 127 míkrógrömm á rúmmetra og 149 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöðinni við Bíldshöfða.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til.

Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á www.reykjavik.is/loftgaedi.  Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík, m.a. mælistöð á Grensásvegi.
Loftgæðafarstöðvar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er nú staðsettar við leikskólann Öskju við Nauthólsveg 87 og í Ártúnsbrekku við Bíldshöfða 2.