Brúðubíllinn heldur af stað út í sumarið

Skóli og frístund

""

Nú er að hefjast 35. starfssumar Brúðubílsins, útileikhúss yngstu borgarbúanna.  

Brúðubílinn starfar undir stjórn Helgu Steffensen en með henni í för í sumar verða þekktar brúður eins og Lilli, Blárefurinn og auðvitað Úlli úlfur, sem er bæði hrekkjóttur og stríðinn. Jafnan er fjör á sýningum því börnin hjálpa til og syngja ýmis lög sem þau hafa lært með brúðunum, s.s. Öxar við ána og Nú er sumar.   

Forsýning verður í Hallargarðinum 4. júní kl. 14.00. 

Sjá dagskrá Brúðubílsins í sumar.