Breyttur opnunartími leikskóla

Skóli og frístund

""

Meirihluti skóla- og frístundaráðs samþykkti á fundi sínum í dag að breyta opnunartíma leikskóla borgarinnar frá og með 1. apríl næstkomandi þannig að almennur opnunartími verði frá kl. 07:30 til 16:30.

Með þessum breytingum styttist opnunartími leikskólanna um hálfa klukkustund en undanfarin ár hefur þeim verið lokað
kl. 17.00.  Jafnframt er tiltekið í breyttum reglum um leikskólaþjónustu að börn geti dvalið í leikskólanum í níu klukkustundir að hámarki á dag.

Fyrirhuguð breyting byggir á tillögu stýrihóps um umbætur og skipulag leikskólastarfs en í honum sitja m.a. kjörnir fulltrúar og fulltrúar leikskólastjóra og leikskólakennara. Stýrihópurinn hefur það hlutverk að skoða leiðir til að auka fagmennsku, minnka álag á börn og starfsfólk og tryggja gæði starfsins með þarfir barnanna í huga. Á undanförnum árum hefur dvalartími barna stöðugt lengst samhliða fækkun á fagfólki, sem ekki síst má rekja til minni aðsóknar í leikskólakennaranám undanfarinn áratug.  Stýrihópurinn telur að stytting opnunartíma muni draga úr álagi á börn, stjórnendur og aðra starfsmenn og styrkja faglegt starf þar sem skipulag daglegs starf og mönnun leikskólans verði einfaldari.

Gefinn verður aðlögunartími að breytingunum sem munu taka gildi 1. apríl 2020.  Foreldrum og forsjáraðilum með gildandi dvalarsamninga til kl. 16:45 eða 17:00 er heimilt að sækja um lengri aðlögunarfrest eða til 1. ágúst 2020 vegna sérstakra aðstæðna.

Gert er ráð fyrir að þessi breyting á opnunartíma leikskólanna taki gildi eftir samþykkt borgarráðs. 

Sjá áfangaskýrslu stýrihóps um umbætur og skipulag leikskólastarfs í Reykjavík sem kynnt var í skóla- og frístundaráði í dag. Í henni kemur m.a. fram að rúmlegur helmingur þeirra foreldra sem kaupa vistunartíma frá 16.30 – 17.00 nýta hann í raun ekki. Þá má geta þess að önnur stór sveitarfélög hafa þegar breytt opnunartíma leikskóla á þennan veg, t.d. Akureyri, Reykjanesbær og Kópavogur.

Stýrihópurinn leggur jafnframt til að laus rými á leikskólum borgarinnar verði boðin foreldrum til umsóknar en um er að ræða rými á leikskólum þar sem búið er að tæma alla biðlista.  Undanfarna mánuði hafa biðlistar tæmst í nokkrum fjölda leikskóla samhliða inntöku yngri barna og er nú fyrirhugað að fara í kynningarátak til foreldra um laus pláss og opna fyrir innritun yngri barna en nú er þar sem aðstæður leyfa.  Á síðasta ári var opnað fyrir innritun 15-18 mánaða barna og tókst að bjóða meirihluta barna á þeim aldri leikskólapláss.