Framundan eru breytingar á akstursþjónustu fatlaðs fólks. Um mánaðamótin mun þjónustan skipta um nafn, útlit og nýjar reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks koma til framkvæmda. Þjónustan fær nýtt nafn, Pant og heimasíðan verður pant.is.
Á nýrri síðu er hægt að fá upplýsingar um breytingarnar en helstu breytingar frá 1. júlí á akstursþjónsutu fatlaðs fólks eru:
- Felld eru á brott ákvæði sem takmarka rétt á þjónustu, s.s. hjá fólki sem fær bílastyrk hjá TR og ferðafjöldi er ekki takmarkaður
- Pöntunartími þjónustuvers verður til kl. 16:00 á virkum dögum, var áður til kl. 18:00. (Áfram er þó vakt eftir kl. 16).
- Aksturstími er styttur til miðnættis, þ.e. til kl. 24:00 í stað kl. 1:00. Á föstudags- og laugardagskvöldum er ekið áfram til kl. 1:00.
- Aksturstími á stórhátíðardögum er lengdur til kl. 22:00, var áður til kl. 17:00.
- Í stað samráðshóps félagsmálastjóra er skipuð sérstök stjórn akstursþjónustu.
- Unnið verður að því að efla notendur til aukins sjálfstæðis og frekari virkni í notkun almenningssamgangna samhliða akstursþjónustu.
Aðrar breytingar sem verða á þjónustunni eru:
- Myndavélar verða í öllum sérútbúnum bílum og verður slíkum bílum fjölgað úr 30 í 45. (Verktaki hefur ár til að mæta þessum kröfum).
- Notkun leigubíla eykst að sama skapi úr 10% í 30% ferða og samið verður við ákveðna leigubílstjóra/leigubílastöð um fastar ferðir.
- Beintenging verður við aksturskerfi leigubílastöðvar.
- Notkun smáforrits sem hægt er að setja upp í snjalltækjum eins og síma og spjaldtölvum. Hægt að panta og afpanta ferðir í forritinu, sjá yfirlit yfir ferðir o.s.frv. Áætlað er að forritið verði tilbúið í október nk.
- Heimasíðan akstursthjonusta.is verður pant.is Á heimasíðunni er að finna allar upplýsingar um þjónustuna.
- Verið er að skoða útfærslu umsókna/pantana með notkun íslykils/rafrænna skilríkja.
Allir notendur akstursþjónustu fatlaðs fólks fá sent bréf þar sem gerð er grein fyrir fyrirhuguðum breytingum á þjónustunni. Það er nýbúið að bjóða út akstursþjónustuna og semja við Hópbíla um að sinna akstrinum.