Borgin vill friða gömul hús á stjórnarráðsreit

Skipulagsmál

""

Ósk um friðun ítrekuð í bréfi borgarstjóra til húsameistara ríkisins.

Borgarstjórinn í Reykjavík hefur sent Stefáni Thors, nýráðnum húsameistara ríkisins, bréf um uppbyggingu á stjórnarráðsreit.  Í því er lýst vilja borgarinnar um að þrjú gömul hús fái að standa áfram á reitnum.  Bréfið var lagt fram á fundi borgarráðs í morgun og er ítrekun á erindi borgarstjóra til forsætisráðsherra sem dagsett er 12. febrúar 2014 en því hefur ekki enn verið svarað. 

Í erindi borgarstjóra til forsætisráðherra var vakin athygli á því að borgarráð hafi falið umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar að endurskoða skipulag reitsins í ljósi hugmynda um að Listaháskóli Íslands myndi koma sér betur fyrir á reitnum. Í dag er starfsemi skólans á reitnum meðal annars í nokkurs konar sumarhúsum sem komið var fyrir með bráðabirgðaleyfum.  Þá vekur  borgarstjóri athygli forsætisráðherra á því að samkvæmt gildandi  deiliskipulagi megi rífa fjögur steinhús á reitnum en eitt þeirra, svokallað Landssímahús sem Guðjón Samúelsson teiknaði, hefur þegar verið rifið.

Í bréfinu til húsameistara segir að Reykjavíkurborg vilji eindregið að þau þrjú hús sem standa eftir á reitnum fái að standa jafnvel þótt það kalli á róttæka endurskoðun á hugmyndum um uppbyggingu í þágu stjórnarráðsins á reitnum. Þessi hús eru Lindargata 3, hús Hæstaréttar sem hannað er af Guðjóni Samúelssyni, Lindargata 7, hús Jóns Þorsteinssonar sem hannað var af Einari Sveinssyni  og friðað árið 2011 og Sölvhólsgata 13 sem hannað var af Einari Sveinssyni.

Borgarstjóri ítrekar í bréfinu vilja borgarinnar til að eiga gott samstarf um endurskoðun skipulags og uppbyggingar á reitnum í sátt við söguna og segir borgina fagna betri nýtingu reitsins og frágangi á honum því að hann sé að ýmsu leyti til skammar.

Að lokum kemur fram að borgarstjóri lýsir yfir vilja fyrir fjölbreyttri uppbyggingu á reitnum:  „Sérstaklega væri vert að skoða hvort ekki mætti koma fyrir leiguíbúðum í bland við uppbyggingu í þágu stjórnarráðsins, í samræmi við húsnæðisstefnu ríkis og borgar, og í þágu lifandi og skemmtilegs mannlífs á þessu lykilsvæði miðborgarinnar.“