Borgarráð leggur grunn að rannsókn á starfsemi Vöggustofa

Mannréttindi Stjórnsýsla

Ráðhúsið endurspeglast

Borgarráð samþykkti í dag að setja á stofn nefnd þriggja óháðra sérfræðinga sem hafi það verkefni að gera heildstæða athugun á starfsemi Vöggustofunnar að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins sem reknar voru í Reykjavík á síðustu öld. Unnið er í samráði við forsætisráðuneyti að útvega nauðsynlegar lagaheimildir fyrir vinnu nefndarinnar.

Reykjavíkurborg hefur talið vera fullt tilefni til að koma á laggirnar nefnd til að rannsaka starfsemi Vöggustofunnar að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins þann tíma er þær voru starfræktar í Reykjavík. Með samþykkt sinni í dag hefur verið lagður grunnur að starfsemi nefndarinnar. Unnið er að tilnefningum í nefndina og tekur hún til starfa um leið og þær liggja fyrir. Í forsætisráðuneytinu er jafnframt unnið að frumvarpi um nauðsynlegar lagaheimildir fyrir vinnu nefndarinnar en fram að því mun nefndin undirbúa úttektina.

Gagnrýni á starfsemi og ljótar lýsingar á aðbúnaði barna

Í gegnum tíðina hefur borið á gagnrýni á starfsemi vöggustofanna og ljótar lýsingar komið fram á aðbúnaði barna sem þar dvöldu, bæði á vettvangi borgarstjórnar og í fjölmiðlum. Sumarið 2021 fóru fimm einstaklingar sem höfðu dvalið á vöggustofunum þess á leit við borgarstjórn að koma á fót teymi sérfræðinga til að rannsaka starfsemi Vöggustofunnar að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins á árunum 1949-1973. Á fundi borgarráðs 22. júlí 2021 var samþykkt tillaga staðgengils borgarstjóra um að farið yrði þess á leit við forsætisráðherra að fram færi heildstæð athugun á starfsemi Vöggustofunnar að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins og eftir atvikum annarra vöggustofa á tilteknu tímabili.

Í framhaldi af því að Reykjavíkurborg sendi forsætisráðuneytinu erindi þessa efnis kom sú afstaða í ljós í samtölum borgarstjóra og forsætisráðherra að athugun á starfsemi vöggustofanna væri best fyrir komið með þeim hætti að Reykjavíkurborg sinnti henni. Á hinn bóginn myndi forsætisráðuneytið liðsinna Reykjavíkurborg við að fá fram nauðsynlegar breytingar á lögum til að slík úttekt geti náð fram að ganga.

Markmið og meginverkefni nefndarinnar

Samkvæmt ákvörðun borgarráðs í dag skulu markmið athugunarinnar og meginverkefni nefndarinnar skulu vera eftirtalin:

a. Að lýsa starfsemi vöggustofanna, hlutverki þeirra í barnaverndar- og/eða uppeldismálum og tildrögum þess að börn voru vistuð þar á því tímabili sem um ræðir.

b. Að leitast við að staðreyna eins og kostur er hvort og þá í hvaða mæli börn sem vistuð voru á stofnuninni hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi meðan á dvölinni stóð.

c. Að lýsa því hvernig eftirliti Reykjavíkurborgar og ríkisins með vöggustofunum var háttað.

d. Að lýsa öðrum atriðum sem tengjast starfsemi vöggustofanna og nefndin telur þarfnast skoðunar.

e. Nefndin skal skila skýrslu um störf sín til borgarráðs.

f. Leggja grundvöll að tillögum til borgarráðs um frekari viðbrögð ef ástæða þykir til.

Nefndin getur ráðið starfsmann í samstarfi við Innri endurskoðanda og ráðgjöf. Þá skal vera sjálfstæð og óháð í störfum sínum og verður heimilt að kalla eftir aðstoð og upplýsingum frá aðilum innan og utan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar við einstaka þætti athugunarinnar. Fundir nefndarinnar skulu vera lokaðir. Nefndarmenn og starfsmaður hennar eru bundnir þagnarskyldu um hvaðeina er varðar einkalíf manna sem þeir fá upplýsingar um við störf nefndarinnar. Þagnarskylda um slík atriði helst þegar störfum nefndarinnar er lokið. Formanni nefndarinnar er heimilt að veita almennar upplýsingar um störf nefndarinnar og verklag meðan hún starfar.

Búast má við að borgarráð skipi fulltrúa í nefndina fljótlega.