Bætt aðgengi frá Bústaðavegi að Perlunni

Samgöngur Umhverfi

Annars vegar verður um að ræða sveigða og aðgengilega leið að Perlunni að mestu í legu eldri stígs og hins vegar tröppur, sem nýtast þeim sem geta og vilja fara beinustu leiðina.
Perlan. Tré, hús, fjöll og snjór.

Gönguleiðin frá biðstöð Strætó við Bústaðaveg hjá Litluhlíð að Perlunni verður bætt með stígagerð og nýjum tengingum. Sem stendur er erfitt fyrir ferðamenn og aðra sem ætla að Perlunni frá Bústaðavegi að átta sig á bestu leið þangað enda er Perlan nánast ósýnileg frá biðskýlinu vegna skógarins í Öskjuhlíð. Endurbættur stígur mun gera aðkomu að Perlunni og Öskjuhlíðinni mun betri fyrir þá sem koma frá Bústaðavegi.

Upplýstur og snjóbræddur

Annars vegar verður um að ræða sveigða og aðgengilega leið að Perlunni að mestu í legu eldri stígs og hins vegar tröppur, sem nýtast þeim sem geta og vilja fara beinustu leiðina. Þessi leið mun til að mynda einnig nýtast íbúum í Hlíðum vel en stígurinn mun tengjast inn í upplifunar- og heilsubótarstíginn Perlufestina. Gert er ráð fyrir að stígurinn verði upplýstur og snjóbræddur.

Umhverfis og skipulagsráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum 10. janúar að veita heimild fyrir áframhaldandi undirbúningi, verkhönnun og gerð útboðsgagna vegna stígagerðarinnar.

Loftmynd af Perlunni. Stígar og bygging.