Um þessi áramót verða brennur á tíu stöðum í Reykjavík, eins og verið hefur undanfarin ár. Umsjón með þeim er ýmist á hendi borgarinnar eða félagasamtaka, sem huga vel að því sem sett er á brennurnar og tryggja að frágangur sé í lagi.
Brennurnar eru á sömu stöðum og í fyrra. Eldur verður borinn að köstunum kl. 20:30 á gamlárskvöld á öllum stöðum nema einum, en á Úlfarsfelli er tendrað kl. 14:30 um daginn.
Áramótabrennur verða á eftirtöldum stöðum.
1) Við Ægisíðu, stór brenna.
2) Skerjafjörður gegnt Skildinganesi 48 - 52, lítil brenna.
3) Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkjugarð, lítil brenna.
4) Vestan Laugarásvegar móts við Valbjarnarvöll, lítil brenna.
5) Geirsnef, stór brenna.
6) Við Suðurfell, lítil brenna.
7) Fylkisbrennan við Rauðavatn, stór brenna.
8) Gufunes við gömlu öskuhaugana, stór brenna.
9) Kléberg á Kjalarnesi, lítil brenna.
10) Úlfarsfell á athafnasvæði Fisfélagsins ofan við Lambhagaveg, lítil brenna (tendrað kl. 14:30).
Stærð brennanna ræðst af mati Eldvarnareftirlitsins á aðstæðum á hverjum stað og er það óbreytt frá fyrra ári. Stóru brennurnar eru fjórar og þær minni sex talsins.
Höfum góða skapið með en enga skotelda!
Fólk er hvatt til að skjóta ekki upp flugeldum við brennurnar. Stjörnuljós og blys eru betri kostur enda barnvænni og hættuminni. Flugeldar og tertur eru betur geymd heima.
Hvað má fara á köstinn?
Byrjað verður að taka á móti efni á kestina föstudaginn 27. desember. Best er að fá hreint timbur á brennurnar. Stærstur hluti þess sem fer á brennurnar eru vörubretti en einnig er fenginn afgangur af jólatréssölunni. Plast, gúmmí og unnið timbur á ekki erindi í köstinn. Starfsmenn hverfastöðva Reykjavíkurborgar verða á vettvangi við flestar brennurnar og leiðbeina þeim sem koma með efni. Hætt verður að taka á móti efni þegar brennurnar eru orðnar hæfilega stórar eða í síðasta lagi kl. 12:00 á gamlársdag.