No translated content text
Áramótabrennurnar í Reykjavík eru á hefðbundnum stöðum og með svipuðu sniði ár hvert. Á gamlárskvöld 2017 eru þær á 10 stöðum og með tveimur undantekningum er borinn eldur að köstunum kl. 20.30.
Hvar eru áramótabrennurnar í ár?
1) Við Ægisíðu, stór brenna.
2) Í Skerjafirði gegnt Skildinganesi 48 - 52, lítil brenna (tendrað kl. 21.00, eftir blysför sem hefst kl. 20.30).
3) Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkjugarð, lítil brenna.
4) Laugardalur, fyrir neðan Laugarásveg 18, lítil brenna.
5) Geirsnef, á norðanverðu Geirsnefi, stór brenna.
6) Við Suðurfell, lítil brenna.
7) Við Rauðavatn að norðanverðu, stór brenna.
8) Gufunes við Gufunesbæ, stór brenna.
9) Við Kléberg á Kjalarnesi, lítil brenna.
10) Úlfarsfell á athafnasvæði Fisfélagsins ofan við Lambhagaveg, lítil brenna (tendrað kl. 15.00)
Stærð brennanna ræðst meðal annars af mati Eldvarnareftirlitsins á aðstæðum á hverjum stað. Skoða staðsetningu í Borgarvefsjá.
Skólavörðuholt. Auk fjölmennis á brennum hafa margir verið á Skólavörðuholti um áramót. Þar verður lokað fyrir umferð um nærliggjandi götur frá kl. 10 á gamlárskvöld til 01 á nýársnótt. Sjá nánar á korti.
Höfum góða skapið með en enga skotelda
Eldur er borinn að köstunum kl. 20.30 á gamlárskvöld á öllum stöðum nema tveimur. Á Úlfarsfelli er tendrað kl. 15.00 um daginn og í Skerjafirði er eldur borinn að kestinum kl. 21.00 eftir blysför sem hefst kl. 20.30. Engin formleg dagskrá er á borgarbrennunum en fólk er hvatt til að rifja upp álfasöngvana og mæta með góða skapið.
Fólk er hvatt til að skjóta ekki upp flugeldum við brennurnar og minnt er á hlífðargleraugu og hanska.
Stjörnuljós og blys eru betri kostur enda barnvænt og hættulítið. Munum eftir hlífðargleraugum og hönskum. Flugeldar og tertur eru betur geymd heima.
Hvað má fara á köstinn?
Byrjað verður að taka á móti efni á kestina þriðjudaginn 27. desember. Best er að fá hreint timbur á brennurnar. Stærstur hluti þess sem fer á brennurnar eru vörubretti en einnig er fenginn afgangur af jólatréssölunni. Plast, gúmmí og unnið timbur á ekki erindi í köstinn. Starfsmenn hverfastöðva Reykjavíkurborgar verða á vettvangi við flestar brennurnar og leiðbeina þeim sem koma með efni. Hætt verður að taka á móti efni þegar þær eru orðnar hæfilega stórar eða í síðasta lagi kl. 12.00 á gamlársdag. Upp úr hádegi á gamlársdag verður olía sett á bálkestina og er það Skeljungur sem leggur því verki lið. Starfsmenn borgarinnar verða við vakt við brennur í framhaldi af því og standa vaktina fram eftir nóttu.
Fyrirspurnir og/eða ábendingar
Við viljum gjarnan fá ábendingar um það sem betur má fara. Þú getur sett inn ábendingu og upplýsingar í ábendingakerfið okkar >>> SETJA INN ÁBENDINGU <<< eða hringt í þjónustuver Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12 - 14, í síma 4 11 11 11. Starfsmenn þar færa þá ábendingu inn í kerfið. Opið kl. 8.20 - 16.15 alla virka daga.