![](/sites/default/files/styles/landscape_small/public/myndir_frettir/frettamyndir_2014_febjuli/100-4088bbo6_1.jpg?h=3a42c0f3&itok=354pew5c)
Búið er að aflýsa áramótabrennum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta var ákveðið á fundi framkvæmdaráðs almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins fyrir helgi.
Ákvörðunin var tekin í ljósi þess að núverandi fjöldatakmarkanir vegna sóttvarnaaðgerða miðast við 50 manns og mikið er um smit í samfélaginu. Þrátt fyrir að áramótabrennur fari fram utandyra þá draga þær að sér fjölda fólks og það er mikilvægt að sveitarfélögin hvetji ekki til hópamyndunar við þessar aðstæður.
Sveitarfélögin átta sig á því að þessi ákvörðun getur valdið vonbrigðum en það er mikilvægt að vinna að því saman að fækka smitum, meðal annars með því að forðast mannmergð og leggja áherslu á fagna hátíðunum í minni hópum.